Námskeið inni í námskeiði.
„Fyrst fannst mér skrýtið að vera að taka svona MOOC-námskeið sem hluta af öðru námskeiði en svo var það bara mjög gott“
Erindi á Menntakviku, rafrænni ráðstefnu í Menntavísindum á vegum Menntavísindasviðs Háskóla Íslands, 1.-2. október 2020.
https://menntakvika.hi.is
Í þessu erindi segi ég frá hvað nemendum í tveimur námskeiðum, í Upplýsingafræði á Félagsvísindasviði HÍ fannst um að taka MOOC námskeið hjá edX og Udemy, inni í HÍ-námskeiðum og fá þau hlutfallslega metin til námsmats út frá vinnuframlagi þeirra.
Upptaka með erindinu: https://youtu.be/yfathqMxkOo
2. Námskeið inni í námskeiði
„Fyrst fannst mér skrýtið að vera að taka svona MOOC-námskeið sem
hluta af öðru námskeiði en svo var það bara mjög gott“
Sigurbjörg Jóhannesdóttir
Aðjúnkt, FVS, HÍ og kennsluráðgjafi, Kennslusvið HÍ
3. Markmið þessa erindis
• Segja frá hvað nemendum í tveimur námskeiðum, í
Upplýsingafræði á Félagsvísindasviði Háskóla Íslands
(HÍ), fannst um að taka MOOC námskeið hjá edX og
Udemy, inni í HÍ-námskeiðum og fá þau hlutfallslega
metin til námsmats út frá vinnuframlagi þeirra.
4. MOOC
(Massive Open On-line Courses)
• Skilgreining á stórum námskeiðum sem fara
fram í rafrænu námsumhverfi á Internetinu
• Námskeiðsveitur eru t.d. edX, Udemy,
Coursera, Futurelearn, ....
5. Er í anda stefnu Háskóla Íslands H21
• Nota kennsluhætti sem virkja nemendur í námi
• Nemendur bera ábyrgð á eigin þekkingarsköpun
• Nemendur eiga að vera virkir í eigin námssamfélagi
• Námsupplifun nemnda á að vera jákvæð
• Kennurum ber að þróa kennsluhætti og efla nýsköpun í
kennslu
6. Um námskeiðið
Námskeiðið er einnig í boði fyrir nemendur í:
• Opinberri stjórnsýslu, Stjórnmálfræðideild, FVS
• Hagnýtri menningarmiðlun og Vefmiðlun við Sagnfræði-
og heimspekideild á Hugvísindasviði
Vefstjórnun og upplýsingaarkitektúr UPP110f
• Námsbraut um Upplýsingafræði
• Félagsfræði-, mannfræði- og þjóðfræðideild
• Félagsvísindasvið
• 8 einingar
7. Kennsluháttur varðandi MOOC
• Nemendur fengu kynningu á MOOC og helstu námskeiðsveitum
2019 2020
Námskeið Val, tengt efni námskeiðs Ákveðið námskeið
Námskeiðsveita Val edX
Greiðslur Val Val
Námsmat 20% 10%
Fjöldi vinnustunda 23 til 31 klst 9 til 13 klst.
• Nemendur mældu tímann sem fór í MOOC-námskeiðin með Toggl
tímamælingarforritinu og skiluðu vinnutímaskýrslum.
• Nemendur tóku þátt í spjalli á Slack og Zoom þar sem þeir deildu upplifun sinni.
• Nemendur skiluðu skýrslu, myndbandi eða vef til kennara um þátttöku sína
• Dæmi um vef: https://fotlunogmidlun.wordpress.com (e. Ólöfu I. Davíðsdóttir)
8. MOOC námskeið
2019 - 21 nemandi
edX 57% (tólf nemendur)
Udemy 43% (níu nemendur)
13 námskeið
Tvö hjá Udemy
Ellefu hjá edX
1 námskeið sem 8 nem. tóku
1 námskeið sem 2 nem. tóku
11 námskeið - 1 nem. á hverju
2020 - 20 nemendur
Tóku allir sama námskeið
Introduction to Web Accessibility á edX
1. Information Architecture (IA) Fundamentals.
Everything you need to know — from what
content should be presented to what it’s called
to how it’s organized! (8)
2. HTML5 and CSS Fundamentals (2)
3. Content is King: Writing Killer Content for Web
& Marketing
4. CSS Basics
5. Design Thinking Fundamentals
6. Digital Security and Human Rights
7. Disability and Digital Media: Accessibility,
Representation and Inclusion
8. Getting Started with the Internet of Things
(IoT)
9. IMAGE | ABILITY - Visualizing the
Unimaginable
10. Innovation and IT
11. Introduction to the Internet of Things (IoT)
12. Product Management with Lean, Agile and
System Design Thinking
13. Public library marketing and public relations
9. Val um námskeið 2019
Hvað fannst þér um að velja sjálf(ur) Mooc námskeið?
• Fannst gott að velja sjálf hvaða námskeið ég tók
því það gerði námið persónulegra og ég hafði
meiri áhuga á námsefninu en ef að kennari hefði
valið eitt námskeið sem allir ættu að taka.
• Mér fannst það nokkuð sveigjanlegt að leyfa
nemendum að velja sjálfir námskeiðin.
• Mér fannst gott að geta valið það sjálfur því að þá
getum maður dýpkað þekkingu á einhverju
áhugasviði en það eru örugglega flóknara fyrir
kennarann.
• Það er frábært að geta valið sér námskeið,
þá sér fólk hvað er til þarna úti
• Ég lenti í vandræðum með að velja og skipti
um skoðun. Ég held að ég hafi haft gott af
því. Ég þurfti að taka ákvörðun og standa
við hana, velja námskeið sem mér fannst
áhugavert og hafa tímasetningu þess í
huga því að það þarf allt að komast fyrir í
dagatalinu. Það þjálfaði mig í að
skipuleggja tíma minn betur.
10. Val um námskeið 2019
Hvað fannst þér um að velja sjálf(ur) Mooc námskeið?
• Mér finnst það bara gott og greinilegt að
áhugasvið fólks er mismunandi og
námskeiðsvalið eftir því. Svo var fólk að deila
reynslu sinni og það var gaman að fylgjast með
þeirri umræðu á Slack-inu.
• Ég var mjög óörugg með hvaða námskeið ég ætti
að taka, ég valdi á endanum námskeið sem
margir aðrir höfðu skráð sig í og ég taldi að gæti
gagnast mér.
• Mjög gott að hver og einn velji fyrir sig
• Fannst það sniðugt, áherslur geta oft verið
mismunandi eftir fólki eftir því hvaða
sjónarmið og áherslur eru til staðar.
• Betra að geta valið sér sjálfur námskeið
11. Val um námskeið 2019
Hvað fannst þér um að velja sjálf(ur) Mooc námskeið?
• Mér fannst gott að fá að velja mér námskeið með
því viðfangsefni sem ég hafði áhuga á. Ég tel þó
að það væri gott að vera með lista af
námskeiðum sem kennara finnst að henti vel og
nemendur velji svo eitt námskeið af listanum.
• Finnst gott að geta valið sjálfur, en hugsanlega
mætti samt þrengja valið (velja kannski úr 5-10
námskeiðum, hugsanlega eftir ábendingum
nemenda, þ.e.a.s. nemendur koma með
hugmyndirnar að námskeiðunum.
• Mér finnst góð hugmynd að hver og einn
geti valið námskeið sem vekur þeirra áhuga
en mér finnst samt að það eigi að vera
einhver takmörk á þeim námskeiðum sem
hægt er að velja úr. Betra væri ef kennari
væri búinn að taka saman lista af
námskeiðum sem tengjast efninu og helst
námskeið sem eru ókeypis svo að
nemendur gætu valið námskeið af þeim
lista.
12. Aðferð
• Þátttaka nemenda í námskeiðum
• Nemendur skiluðu skýrslum um þátttöku sína í
lok námskeiða
• Netkönnun
14. Hátt hlutfall nemenda þekkti ekki MOOC námskeið
24%
76%
35%
65%
0%
20%
40%
60%
80%
100%
Já Nei
Hlutfall
2019 2020
• Nei, það vissi ég ekki. Ég er mjög þakklát
fyrir að hafa fengið að kynnast þessum
möguleika á að sækja þekkingu og hef
deilt þessari nýfundnu auðlind með
manninum mínum og hann er byrjaður að
nýta sér MOOC námskeið.
• Ég hafði aldrei heyrt um Mooc námskeið
áður og vissi ekki að það væri hægt að
taka svona námskeið á netinu.
• Mér finnst gaman að hafa kynnst
Mooc(edX) námskeiði þar sem ég hafði
aldrei heyrt um þessa tegund námskeiða
áður.
Vissir þú hvað Mooc námskeið var áður en þú tókst þetta námskeið?
Beinar tilvitnanir frá nemendum:
15. Þetta er bara skemmtilegt, fræðandi og hressir
upp á námskeiðið að hafa svona tilbreytingu
innan þess, hef aldrei verið á námskeiði í
námskeiði áður.
Bein tilvitnun frá nemenda 2020
16. Mér finnst gaman að hafa fengið að kynnast opnu
netnámskeiði (Mooc)(EdX) í þessum áfanga og
veit að ég mun eiga eftir að nýta mér fleiri slík
námskeið í framtíðinni
Bein tilvitnun frá nemenda 2020
17. Finnst það bara jákvætt, hefði bara viljað að
diplóman sjálf væri ekki alveg svona dýr.
Finnst það mjög jákvætt. Gott að geta tekið það í
rólegheitunum á sínum hraða þegar hentaði.
Beinar tilvitnanir frá nemendum 2020
18. Fyrst fannst mér skrýtið að vera að taka svona
námskeið sem hluti af öðru námskeiði en þegar
ég fór að taka þetta námskeið þá skildi ég
mikilvægi þess.
Kom mér hálf spánskt fyrir sjónir til að byrja með
en er svo bara mjög gott verð ég að segja.
Beinar tilvitnanir frá nemendum 2020
19. Flestir vilja fleiri MOOC námskeið
Myndir þú vilja taka fleiri Mooc námskeið og fá þau metin inn
í önnur námskeið í HÍ?
90%
10%
100%
0%
0%
20%
40%
60%
80%
100%
Já Kannski
Hlutfall
nemenda
2019 2020
• Já, mér finnst þetta góð viðbót.
• Já, fannst þetta skemmtileg áskorun.
• Já svo sannarlega , þetta opnaði augum mín fyrir því
hvað hægt er að læra eftir þessum leiðum.
• Já mjög sniðug leið. Fjölbreytt og spennandi Mooc
námskeið í boði.
• Ég á örugglega eftir að taka fleiri Mooc námskeið í
framtíðinni og það væri ekki verra að fá þau metin inn í
önnur námskeið í HÍ.
• Já svo sannarlega , þetta opnaði augum mín fyrir því
hvað hægt er að læra eftir þessum leiðum.
Beinar tilvitnanir frá nemendum:
20. Það er mjög gagnlegt að hafa þetta námsefni
með en þetta er gríðarlega mikið efni og mikið
álag með öllu hinu.
Bein tilvitnun frá nemenda 2020
21. Þetta var öðruvísi upplifun og frekar jákvæð og
eftir á að hyggja gætu þetta verið tvö námskeið
t.d. gæti seinna mooc námskeið að vera hefjast
núna… fyrsta valið af kennara og seinna valið af
nemenda en bæði þannig að þau styðji
heildarnámsefni
Bein tilvitnun frá nemenda 2020
22. Einkunn sem nemendur gáfu
fyrir námsmatsþáttinn/námskeiðið
A B C
2019 2020 2020
Einkunn 9,5 8,9 8
A: Hvaða einkunn myndir þú gefa þessu verkefni í námskeiðinu, frá 0-10. Þe. 10 þýðir að þú ert mjög ánægð(ur)
með að þátttaka í Mooc námskeiði sé metið inn í þetta námskeið.
B: Hvaða einkunn myndir þú gefa þessu verkefni í námskeiðinu (þe. að fara í gegnum edX námskeiðið um
vefaðgengi og fá það metið inn í þetta námskeið UPP110f). Skalinn er 0 til 10. Þe. 10 þýðir að þú ert mjög
ánægð(ur) með að þátttaka í Mooc námskeiði sé metið inn í þetta námskeið.
C: Hvaða einkunn myndir þú gefa þessu námskeiði “Introduction to Web Accessibility” (Skali: 1 til 10 þar sem 10
er besta einkunnin).
Spurningarnar:
23. Beinar tilvitnanir frá nemendum 2019
• Mér fannst þetta pínu skrítið fyrst að taka þetta inní
öðru námskeiði en eftir á er þetta mjög góð
hugmynd, gagnlegt og fróðlegt og fær því 10.
• Ég var mjög ánægð með þetta fyrirkomulag = 10.
• Ég myndi gefa þessu 9. Frábær möguleiki, en sjá
athugasemdir um að þrengja valið og hugsanlega
láta nemendur gera meira með námskeiðið, ekki
bara taka það.
• 7, er ánægð með þátttöku í námskeiðinu, en vinnan
við að taka svona námskeið hjá mér var meiri en
20% sem það var metið sem.
Beinar tilvitnanir frá nemendum 2020
• Ég ætla bara að gefa þessu tíu; mjög ánægð með
að þáttaka í Mooc námskeiði sé metið inn í
námskeiðið.
• 10 – ég er mjög ánægð með það.
• 8 frekar ánægður með þennan þátt námsins
• 5 (ágætt/ekkert sérstakt).
Getur þú sagt afhverju þessi einkunn sem þú nefnir hér að ofan?
24. Hlutfall sem luku af námskeiðum
Hvaða hlutfall kláraðir þú af námskeiðinu?
• 2019 – 98%
• 2020 – 91%
• Ég held að ég hafi náð ca 75% af námskeiðinu en
af því að ég vildi ekki borga núna (ætla að gera
það þegar ég fer í þetta næst) þá lokaðist
námskeiðið áður en ég gat klárað. Ég ætla samt
að klára
• Ég kláraði námskeiðið og fékk viðurkenningarskjal
að lokum.
• Ég kláraði allt námskeiðið og fékk lítið
útskriftarskírteini sem ég gat deilt á LinkedIn
síðuna mína.
• Ég kláraði þann hluta sem stóð mér til boða. Hægt
var að greiða fyrir stærri útgáfu að verkefninu sem
ég valdi að taka ekki.
• Ég sleppti æfingum og prófum en tók þátt í
umræðum og las aðal greinarnar sem mælt var
með að lesa. Ætli það sé ekki amk 80% af
námskeiðinu?
Beinar tilvitnanir frá nemendum:
Hlutfall nemenda sem lauk 100%
• 2019 - 90% nemenda
• 2020 - 25% nemenda
25. Eru sátt við hlutfall námsmats
• Mér finnst það mætti vera hærra hlutfall en svo eru önnur
verkefni í áfanganum sem einnig er mikið álag í og ekki vil
ég minnka hlutfallið þar. Svo ég er ekki alveg viss.
• 10-20% væri ekki óeðlilegt hlutfall. Það er mjög auðvelt að
sökkva sér ofan í þetta viðfangsefni og taka þátt í öllum
umræðum og skoða ítarefnið. En með tilliti til þess að
hugsunin er væntanlega sú að gefa nemendum smá innsýn
inn í vefaðgengismál og dýpka tilfinninguna fyrir
uppbyggingu vefsíða, auk þess sem skýrslugerðin er ekki
yfirþyrmandi, þá eru 10% nokkuð sanngjarnt hlutfall.
Miðað við vinnuálag við að fara í gegnum þetta edX námskeið ertu sátt/ur við hlutfallið
10% fyrir það? Ef ekki ertu til í að segja hér hvað þér finnst að hlutfallið hefði átt að vera.
• Ég er sátt með það. Fór smá tími í þetta en
hlutfallslega miðað við einingafjölda þá held ég
að það sé rétt reiknað.
• Vinnuhlutfallið er í lagi
• Þar sem lítið annað var að gera í áfanganum á
meðan við vorum að fara í gegnum edX
námskeiðið er ég nokkuð sátt við það. Það má
alls ekki vera minna en kannski fara upp í
15%.
80% eru sátt við 10% út frá vinnutímaviðmiði
20% fannst að ætti að vera hærra hlutfall vegna of mikils vinnutíma
26. Mér fannst MOOC námskeiðið styrkja þá þekkingu sem ég
öðlaðist á námskeiðinu með hefðbundnari leiðum s.s.
fyrirlestrum og lesefni. Það gaf mér tækifæri til þess að bæta
við þekkingu mína þar sem þess var þörf og einstaklingsmiða
námið. Auk þess að bæta við og styrkja námsefnið, var mjög
jákvætt að uppötva þessa nýju leið til að bæta við mig þekkingu
á hinum ýmsu sviðum. Það kom mér á óvart hversu fjölbreytt,
mörg og sértæk námskeiðin voru.
Bein tilvitnun frá nemenda 2029
Hvað fannst þér um að taka Mooc námskeið inni í þessu námskeiði?
27. Mér fannst það góð hugmynd þar sem að það gefur manni
tækifæri til að fara í þá áttina sem áhuginn liggur. Getur einnig
verið gott ef manni finnst HÍ námskeiðið erfitt og manni vantar
meiri grunn. Einnig gott ef að nemanda finnst hann kannski
kominn lengra í einhverjum þætti innan HÍ námskeiðsins þá væri
hægt að taka Mooc námskeið sem krefst meir og nemandi nær
betur að bæta við sig. Getur gefið nemendur dýpri skilning hvor
sem þeir standa í faginu.
Bein tilvitnun frá nemenda 2029
Hvað fannst þér um að taka Mooc námskeið inni í þessu námskeiði?
29. Mér fannst það skemmtilegt og áhugavert, það er svo undir
einstaklingnum komið hvernig hann setur það upp fyrir sjálfan
sig. Eins og ég gerði það að ég var búin að eyrnamerkja
ákveðna helgi þar sem ég mundi einbeita mér algjörlega að
þessu verkefni á meðan aðrir mundu kjósa að taka þetta hægar
yfir lengri tíma. Mér fannst þetta lærdómsríkt og skemmtileg
tilbreyting frá hefðbundnu námi.
Bein tilvitnun frá nemenda 2029
Hvað fannst þér um að taka Mooc námskeið inni í þessu námskeiði?
30. Ég var ánægð með að mega velja mér áhugasvið og tengja það
viðfangsefni HÍ námskeiðsins. Mér fannst Mooc námskeið henta
mér því þar hafði ég fulla stjórn á tíma mínum og gat skipulagt
vinnuálag. Samskiptaflöturinn innan Mooc er miklu stærri og
virkari en í HÍ en þátttakendur mun fleiri svo nemandinn heyrir
fleiri sjónarmið. Þarna spilar líka inn í að kynnast víðara
menningasamhengi í samræðum því umræður í námskeiðum
geta verið mjög mistækar og nemendur misreiðubúnir og
misfærir til skoðanaskipta.
Bein tilvitnun frá nemenda 2029
Hvað fannst þér um að taka Mooc námskeið inni í þessu námskeiði?
31. • Mjög sniðug hugmynd.
• Gaman að hafa þetta og á mjög vel við námskeiðið.
• Bara að þetta er góð hugmynd 😊
• Fannst þetta áhugaverð nálgun sem virkar
• Gagnlegt námskeið í annars mjög gagnlegum og skemmtilegum HÍ-áfanga 😊
• Takk fyrir að bæta þessu við námsefnið, fræðandi og flott námskeið.
Beinar tilvitnanir frá nemendum