„Hafði á tilfinningunni að henni væri umhugað um að maður lærði.“ Hvaða þættir hafa áhrif á upplifun nemenda af umhyggju kennara og myndun tengsla milli nemenda og kennara á námskeiði í netheimum?
„Hafði á tilfinningunni að henni væri umhugað um að maður lærði.“ Hvaða þættir hafa áhrif á upplifun nemenda af umhyggju kennara og myndun tengsla milli nemenda og kennara á námskeiði í netheimum?
Nám í gegnum netið hefur aukist mikið og mun líklega aukast enn meira á næstu árum, ekki síst í kjölfar reynslu síðustu tveggja ára (COVID) sem voru full af áskorunum en einnig lærdómstími. Ekki vannst þó alltaf tími til að leggja kennslufræðilegan grunn þegar námskeið voru færð úr staðnámi í netheima, en margt ber að athuga við þá breytingu.
Ein af þeim áskorunum sem kennarar standa frammi fyrir, ekki síst þegar þeir kenna á netinu, er að skapa góð tengsl milli sín og nemenda sinna, skapa gott andrúmsloft þar sem nemendur eru öruggir, þora að spyrja spurninga og upplifa að kennaranum sé umhugað um að þeim gangi vel. Rannsóknir sýna sterk tengsl milli slíks kennsluumhverfis og áhugahvatar. Áhugahvöt virkjar síðan nemendur í námi og er því forsenda þess að nám fari fram. Rannsóknir um hvernig slík upplifun nemenda verður til í stafrænu umhverfi eru þó fáar.
Í samstarfi við umsjónarkennara námskeiðs (og meðhöfund okkar) notuðum við blandaða aðferðafræði (spurningalista, rýnihópa og viðtal) til að skoða upplifun nemenda í námskeiði á Félagsvísindasviði sem hafði verið fært í netheima 2019. Námskeiðið hafði þróast úr staðnámi í blendingsnám sem umsjónarkennari taldi að skilaði ekki nægilega góðum árangri. Spurningalisti var sendur til nemenda námskeiðsins haustin 2019 (pilot), 2020 og 2021. Í spurningalistanum voru bæði sannprófaðir kvarðar, meðal annars um upplifun nemenda af umhyggju kennara og trú þeirra á að þeir gætu náð árangri, auk stakra spurninga. Svarhlutfall var 54% en 172 nemendur af 318 svöruðu könnuninni (2020 og 2021). Auk þess var rætt við sjálfboðaliða í þremur rýnihópum og viðtal tekið við umsjónarkennara námskeiðs.
Niðurstöður sýndu að skýrt skipulag, leiðbeiningar, hvetjandi tölvupóstar og önnur rafræn samskipti, s.s. á umræðuþræði, urðu til þess að nemendur upplifðu að kennara væri ekki sama um þá og árangur þeirra í námi. Auk þess átti ákveðin tengslamyndun sér stað, þar sem mörgum nemendum fannst þeir þekkja kennarann í lok námskeiðs þótt þeir hefðu aldrei hitt hann (hana) og töldu það meðal annars vera vegna persónulegrar og léttrar framkomu í vel gerðum myndböndum, þar sem andlit kennara var sjáanlegt, og tíðra rafrænna samskipta.
Við ályktum að gott skipulag byggt á kennslufræðilegum grunni, vel unnin myndbönd þar sem kennari talar á léttum og persónulegum nótum og tíð samskipti með ýmsum leiðum hafi mikil áhrif á það hvort nemendur upplifi að kennara sé umhugað um námsgengi þeirra og einnig trú nemenda á að þeir geti náð árangri í námskeiðinu sem eru mikilvægir þættir tengdir áhugahvöt. Í erindinu verður þessum áhrifaþáttum tengslamyndunar lýst nánar.
„Hafði á tilfinningunni að henni væri umhugað um að maður lærði.“ Hvaða þættir hafa áhrif á upplifun nemenda af umhyggju kennara og myndun tengsla milli nemenda og kennara á námskeiði í netheimum?
6. Sannprófaðir kvarðar sem notaðir voru:
Cronbach’s Alpha er frá upphafsúgáfu (Jones, Sahbaz, og
Chittum, 2015), og sannprófaðri íslenskri þýðingu (Schram &
Jones, 2015). Síðasti dálkurinn með Alpha frá núverandi
prófun á sama lista.
7. This Photo by Unknown author is licensed under CC BY-SA.
9. Nemendur upplifðu umhyggju kennara
α
Frekar til mjög
sammála
78%
97%
94%
100%
39%
17%
15%
12%
33%
31%
34%
35%
6%
46%
48%
53%
0% 10% 20% 30% 40% 50% 60% 70% 80% 90% 100%
Kennarinn í námskeiðinu var vingjarnlegur
Kennarinn í þessu námskeiði var almennt tilbúinn til að
hjálpa mér ef ég þurfti á hjálp að halda
Kennarinn vildi að mér gengi vel á námskeiðinu
Kennarinn í námskeiðinu sýndi mér virðingu.
Mjög ósammála Ósammála Frekar ósammála Frekar sammála Sammála Mjög sammála
16. Heildareinkunn námskeiðs er fengin úr Kennslukönnunum Háskóla Íslands.
Árið 2018 svöruðu 56,6% skráðra nemenda (64/113), 2019 51,7% (92/178),
2020 48,4% (84/173) og 2021 46,4% (96/207)
HLUTI AF STÆRRI RANNSÓKN
Flott mynd en Er nokkur mynd til án sólgleraugna Var bara að spá í að augun sæjust...
Kenningar um tengsl
MUSIC Model m.a. byggt á:
Self-Determination theory – (Deci & Ryan)
Expectancy Value theory – (Wigfield & Eccles)
Theory of Belonging - Kenningar um þörfina til að tilheyra hópi -(Baumeister & Leary)
Flestir hafa þörf fyrir tengsl í hópi, mismunandi mikil
Tengsl byggja upp traust sem eykur vellíðan í hópi
Tengsl í fjarnámi hafa verið minna rannsökuð en í staðnámi
References:
Baumeister, R., & Leary, M. (1995). The need to belong: Desire for interpersonal attachments as a fundamental human motivation. Psychological Bulletin, 117(3), 497–529.
https://selfdeterminationtheory.org/theory/ Deci & Ryan
Expectancy-value theory Wigfield & Eccles
Upplifðu á skipulaginu að kenn ekki sama hvernig gengi, upplifðu caring þátturinn og samfélagið
Dæmi um spurningar:
Kennarinn í námskeiðinu sýndi mér virðingu
Kennarinn í þessu námskeiði var almennt tilbúinn til að hjálpa mér ef ég þurfti á hjálp að halda.
Kennarinn vildi að mér gengi vel í námskeiðinu
Kennarinn í námskeiðinu er vingjarnlegur
(af því skipulag gott, fannst geta ráðið við námskeiðið
Ég get náð góðri lokaeinkunn í þessu námskeiði
Ég er viss um að ég get náð góðum árangri í námskeiðinu
Mér finnst ég geti náð góðum árangri í námskeiðinu
Mér finnst ég geti ráðið við það sem ég er að gera í tímum (hefði kannski átt að vera “í námskeiðinu)
Vingjarnlegur kennari, gott skipulag og skýr framsetning á upplýsingum hefur jákvæð áhrif.
Nemendur upplifa tengsl og umhyggju sem eykur líkur á ánægju og góðum námsárangri.
MÁR FINNST AÐ ÞESSI TEXTI ÆTTI AÐ VERA Í TÖLUÐU MÁLI, SEM SÉ, ÁLYKTUNIN ER SKÝR OG SÍÐAN TÖLUM VIÐ ÞETTA.
Atriði sem ýta undir að nemendum finnsit þeir mynda tengsl við kennara... gott skipulag, allt efni aðgengilegt og tilbúið í canvas í byrjun námskeiðs (nema spurt og svarað video og aðgengi að prófum ekki opið)
tilkynningar í gegnum Canvas með skýrum upplýsingum, áminningum, hvatningu, niðurstöðum úr helgarsp, fjölvalsprófum, segja frá einhverju í fréttum, bendir á það sem er að gerast í samfélaginu og tengist efni námskeiðsins
Kennari setur sjálf inn á umræðuþræði....
vikuleg myndbönd á mánudögum með svörum við emilum í vikunni
svarar ekki emailum nema sé eitthvað persónulegt
það að nemendur hitti ekki kennara í rauntíma hvorki á neti né stað (nema örfáir sem mæta á eina zoom fund misserisins) ...
einstaklingsnámsmat – engine hópverkefni eða hvatning til að hitta aðra nemendur
Fókusinn á námsefnð eingöngu
Miklar kröfur til nemenda með miklu aðhaldi sem er fólgið í heldarspurningum og fjölvalsprófi í lok hvers kennsluhluta sem eru þrír