Erindi um vendikennslu á Ársþingi Samtaka áhugafólks um skólaþróun 8.-9. nóvember. Svava Pétursdóttir og Þormóður Logi Björnsson. http://skolathroun.is/?pageid=103 Svava Pétursdóttir, nýdoktor Menntavísindasviði HÍ og Þormóður Logi Björnsson kennari Akurskóla. Vendikennsla: viðbót í verkfærakistu kennara? Vendikennsla er að ryðja sér til rúms í íslenskum skólum, í erindinu verður rætt um tilraunir við að beita aðferðinni og möguleikum hennar til að hafa áhrif á kennsluhætti. Þormóður Logi og Ragnar Þór Pétursson Norðlingaskóla hafa verið að útbúa myndbönd til vendikennslu í efstu bekkjum grunnskóla. Rætt verður um hvað þurfi að hafa í huga við gerð slíkra mynda, bæði tæknilega hlið mála og inntak myndbandanna. Könnun var gerð á viðhorfum nemenda sem lærðu einn kafla í náttúrufræði með vendikennslu, kynntar verða niðurstöður þeirrar könnunar, hvernig nemendur notuðu myndböndin og hvað þeim fannst um aðferðina.