2. Fæðingarár og staður Hallgrímur Pétursson fæddist árið 1614 á Gröf á Höfðaströnd. Það var snemma komið honum fyrir á Hólum.
3. Uppvaxtarár Þegar Hallgrímur var lítill var hann mjög óþekkur en þrátt fyrir það var hann mjög góður námsmaður. Hann var rekinn úr skóla og var þá sendur í nám til Glückstadt Glückstadt
4. Lærlingur í járnsmíði Í Glückstadt lærði Hallgrímur járnsmíði. Nokkrum árum síðar fékk hann starf hjá járnsmið í Kaupmannahöfn, þar hitti hann Brynjólf Sveinsson.
5. Námsárin í Kaupmannahöfn Brynjólfur Sveinsson kom honum í nám í Frúarskóla í Kaupmannahöfn þar lærði hann til prests í nokkur ár og honum gekk vel. Árið 1636 var hann kominn í efsta bekk. Haustið 1636 komu nokkrir Íslendingar til Kaupmannahafnar sem höfðu lent í Tyrkjaráninu og verið út í Alsír í tæpan áratug. Þeir voru farnir að ryðga í kristinni trú og jafnvel móðurmálinu. Hallgrímur var fenginn til að fara yfir fræðin með þeim.
6. Hjónaband og barneignir Í hópnum frá Alsír var kona Guðríður Símonardóttir að nafni. Hallgrímur og Guðríður urðu ástfangin þó að Guðríður var allnokkuð eldri en Hallgrímur og æxluðust mál þeirra. Hallgrímur yfirgaf námið í Danmörku og fór til Íslands með Guðríði. Snemma vors 1637 varð Guðríður ófrísk af fyrsta barni þeirra. Seinna eignuðust þau fleiri börn. Eyjólf, Guðmund og Steinunni
7. Starf Hallgríms sem prestur Árið 1644 losnaði embætti prests á Hvalnesi, þá ákvað Brynjólfur Sveinsson, biskup í Skálholti að vígja Hallgrím til þessa embættis. Þar líkaði Hallgrími ekki að búa. Árið 1651 fékk Hallgrímur starf á Saurbæ á Hvalfjarðarströnd þar líkaði Hallgrími betur
8. Ljóð Hallgríms Passíusálmarnir 50 og sálmurinn ,,Allt eins og blómstrið‘‘ eru verk sem Hallgrímur Pétursson er þekktastur fyrir. Hallgrímur orti heilræðakvæði sem voru vinsæl kveðskapargrein á þessum tíma. Eitt heilræðakvæði hans er stafrófskvæði þar sem upphafsstafir erindanna mynda stafrófið. Frægustu heilræðavísurnar eru þær sem hann orti fyrir börn þær fjalla um gildi menntunar, heiðurs og trúar. Þessar vísur læra börn á Íslandi á fyrstum árum í skóla.
9. Ævilok Síðustu ár sín bjó Hallgrímur á Kalastöðum og loks á Ferstiklu á Hvalfjarðarströnd Þar dó hann úr holdsveiki