Slides from a lecture I had about the story of Alexandra Elbakyan founder of Sci-Hub.
If you want to cite my slides it is in APA
Sigurbjörg Jóhannesdóttir. (2018, March 5). Who is Alexandra Elbakyan? Paper presented in the course Stjórnun og stefnumótun UPP204F in University of Iceland.
Glærur með myndbandinu:
https://youtu.be/Jl68bhutmU8
Unpaywall er viðbót (e. extension) við vafra. Er til fyrir allavega Firefox og Chrome, líklega fleiri. Unpaywall lætur þig vita þegar þú ert á vefsíðu greinarinnar í tímariti hvort að heildartexti hennar sé aðgengilegur á Netinu. Grænn lás sem birtist við hlið greinar í vafranum segir til um að heildartextinn sé til. Grár lás þýðir að Unpaywall veit ekki til þess að það sé til lögleg útgáfa af heildartextanum ókeypis á Netinu.
Viljum við stofna íslensk samtök á sviði fjarnáms og stafræns náms?University of Iceland
Erindi á ráðstefnunni Menntakvika 29. september 2023.
Hér er verið að segja frá niðurstöðum úr fimm viðtölum við fjóra aðila á norðurlöndunum sem standa að samtökum um fjarnám og/eða stafræna kennslu og ein samtök á Íslandi sem hafa gengið vel.
Einnig sagt frá hugmyndafundi sem var í júní 2023 og niðurstöðum tveggja spurningakannana sem þátttakendur svöruðu og greiningu á hópavinnu í Mural um tilgang, áherslur og markhópa, einnig er mynd af orðaskýi þar sem þátttakendur nefndu þau lykilhugtök sem þeir vilja að komi fram í heiti samtakanna.
Niðurstaðan er að það er vilji til að stofna samtök um fjarnám og stafrænt nám á Íslandi, sem yrði vettvangur miðlunar og samstarfs.
Höfundar: Sigurbjörg Jóhannesdóttir, Sólveig Jakobsdóttir og Hróbjartur Árnason
Þróun kennsluhátta á Menntavísindasviði og hvað gæti falist í kennsluhúsnæði ...University of Iceland
Fyrirlestur á kennslukaffi kennara á Menntavísindasviði Háskóla Íslands þar sem var meðal annars rætt um skilgreiningar á hugtökum ólíkra kennsluforma eins og: staðnám, valvíst nám, fjarnám, netnám, sjálfsnám
„Hafði á tilfinningunni að henni væri umhugað um að maður lærði.“ Hvaða þætti...University of Iceland
„Hafði á tilfinningunni að henni væri umhugað um að maður lærði.“ Hvaða þættir hafa áhrif á upplifun nemenda af umhyggju kennara og myndun tengsla milli nemenda og kennara á námskeiði í netheimum?
Nám í gegnum netið hefur aukist mikið og mun líklega aukast enn meira á næstu árum, ekki síst í kjölfar reynslu síðustu tveggja ára (COVID) sem voru full af áskorunum en einnig lærdómstími. Ekki vannst þó alltaf tími til að leggja kennslufræðilegan grunn þegar námskeið voru færð úr staðnámi í netheima, en margt ber að athuga við þá breytingu.
Ein af þeim áskorunum sem kennarar standa frammi fyrir, ekki síst þegar þeir kenna á netinu, er að skapa góð tengsl milli sín og nemenda sinna, skapa gott andrúmsloft þar sem nemendur eru öruggir, þora að spyrja spurninga og upplifa að kennaranum sé umhugað um að þeim gangi vel. Rannsóknir sýna sterk tengsl milli slíks kennsluumhverfis og áhugahvatar. Áhugahvöt virkjar síðan nemendur í námi og er því forsenda þess að nám fari fram. Rannsóknir um hvernig slík upplifun nemenda verður til í stafrænu umhverfi eru þó fáar.
Í samstarfi við umsjónarkennara námskeiðs (og meðhöfund okkar) notuðum við blandaða aðferðafræði (spurningalista, rýnihópa og viðtal) til að skoða upplifun nemenda í námskeiði á Félagsvísindasviði sem hafði verið fært í netheima 2019. Námskeiðið hafði þróast úr staðnámi í blendingsnám sem umsjónarkennari taldi að skilaði ekki nægilega góðum árangri. Spurningalisti var sendur til nemenda námskeiðsins haustin 2019 (pilot), 2020 og 2021. Í spurningalistanum voru bæði sannprófaðir kvarðar, meðal annars um upplifun nemenda af umhyggju kennara og trú þeirra á að þeir gætu náð árangri, auk stakra spurninga. Svarhlutfall var 54% en 172 nemendur af 318 svöruðu könnuninni (2020 og 2021). Auk þess var rætt við sjálfboðaliða í þremur rýnihópum og viðtal tekið við umsjónarkennara námskeiðs.
Niðurstöður sýndu að skýrt skipulag, leiðbeiningar, hvetjandi tölvupóstar og önnur rafræn samskipti, s.s. á umræðuþræði, urðu til þess að nemendur upplifðu að kennara væri ekki sama um þá og árangur þeirra í námi. Auk þess átti ákveðin tengslamyndun sér stað, þar sem mörgum nemendum fannst þeir þekkja kennarann í lok námskeiðs þótt þeir hefðu aldrei hitt hann (hana) og töldu það meðal annars vera vegna persónulegrar og léttrar framkomu í vel gerðum myndböndum, þar sem andlit kennara var sjáanlegt, og tíðra rafrænna samskipta.
Við ályktum að gott skipulag byggt á kennslufræðilegum grunni, vel unnin myndbönd þar sem kennari talar á léttum og persónulegum nótum og tíð samskipti með ýmsum leiðum hafi mikil áhrif á það hvort nemendur upplifi að kennara sé umhugað um námsgengi þeirra og einnig trú nemenda á að þeir geti náð árangri í námskeiðinu sem eru mikilvægir þættir tengdir áhugahvöt. Í erindinu verður þessum áhrifaþáttum tengslamyndunar lýst nánar.
Inngangur: Á síðustu tveimur árum fluttist mikið af kennslu alfarið yfir á netið vegna Covid. Í framhaldi af þeirri reynslu og fyrirhuguðum flutningum Menntavísindasviðs Háskóla Íslands í nýtt húsnæði var ákveðið að skoða hvernig kennarar sjá fyrir sér kennsluhætti í sínum námskeiðum og hvernig kennsluaðstöðu þeir telja sig þurfa.
Aðferð: Netkönnun var send til fastráðinna kennara og stundakennara (154) á Menntavísindasviði í apríl 2022. Kennarar voru beðnir um að velja eitt námskeið og svara fyrir það. Þeir gátu einnig sett inn fleiri námskeið ef að svörin væru sambærileg fyrir þau ásamt því að svara könnuninni aftur fyrir fleiri námskeið.
Niðurstöður: Þátttakendur í könnuninni voru 80 (52%) og svöruðu þeir fyrir 267 (58%) námskeið, á grunn- og framhaldsstigi, sem eru kennd við Menntavísindasvið. Samkvæmt niðurstöðum verður fjarnám í boði á um ¾ hluta námskeiðanna en meirihluti þeirra verður kenndur í staðnámi með fjarnámsmöguleika fyrir nemendur. Um 90% námskeiðanna gera ráð fyrir staðnámsmætingu fjarnema í staðlotur eða rauntímaviðveru á neti í reglulegum staðnámstímum. Flestir kennarar vilja nýta staðtíma fyrir umræður, para- og hópavinnu og stúdentakynningar. Í um 70% námskeiða sem bjóða upp á fjarnám er gert ráð fyrir netfundum sem eru oft einnig ætlaðir staðnemum. Um ¼ námskeiða við sviðið munu ekki bjóða upp á fjarnámsmöguleika fyrir nemendur. Tæplega 80% kennara sjá fyrir sér að þeir komi til með að búa til sérmyndbönd með fyrirlestrum og öðru efni, sem þeir munu birta í Canvas. Þeir vilja flestir (75%) nýta eigin skrifstofuaðstöðu í HÍ til að vinna þessi myndbönd.
Ályktun: Lágt hlutfall námskeiða á Menntavísindasviði eru skipulögð og kennd sem fjarnámskeið. Flest námskeiðin byggja á staðkennslu sem nemendur geta tekið í fjarnámi. Um er að ræða svokölluð blönduð námskeið (e. hybrid) og námskeið þar sem nemendur mæta í staðkennslu með aðstoð fjarfundabúnaðar (e. hyflex). Það er umhugsunarefni hversu margir kennarar vilja bjóða fjarnemum að mæta í staðkennsluna á netinu því til að hægt sé að bjóða upp á góða upplifun fyrir nemendur þannig að nám fari fram, þarf sérútbúin rými með hljóðdempun, góðum hljóðnema, hátalara, myndavélar, góða lýsingu og nokkra stóra skjái. Húsgögn, skjáir, myndavélar og fleira þarf helst allt að vera færanlegt en langflestir kennarar segjast vilja kennslustofu sem er auðvelt að breyta uppröðun í og hentar til para- og hópavinnu.
Harpa Dögg Kristinsdóttir, Guðný Sigurðardóttir, Tinna Karen Sveinbjarnardóttir og Sigurbjörg Jóhannesdóttir. (2021, 15. október). Hvernig tryggjum við akademísk heilindi í fjarnámi? Notkun Turnitin í kennslu og námi [fyrirlestur]. Málstofa: Háskólar: Námsmat. Menntakvika, ráðstefna í menntavísindum, Menntavísindasvið Háskóla Íslands. Reykjavík (on-line).

Getur góð endurgjöf styrkt tengsl kennara og nemenda í fjarnámi? Notkun Turni...University of Iceland
Guðný Sigurðardóttir, Harpa Dögg Kristinsdóttir, Sigurbjörg Jóhannesdóttir, Hilma Gunnarsdóttir og Tinna Karen Sveinbjarnardóttir. (2021, 15. október). Getur góð endurgjöf styrkt tengsl kennara og nemenda í fjarnámi? Notkun Turnitin við kennslu [Fyrirlestur]. Málstofa: Skólastarf á tímum Covid. Menntakvika, ráðstefna í menntavísindum, Menntavísindasvið Háskóla Íslands. Reykjavík (on-line).
Kynning á niðurstöðum rannsóknar á námskeiðinu OSS111F Opinber stjórnsýsla í ...University of Iceland
Sigurbjörg Jóhannesdóttir og Ásta Bryndís Schram. (2021, 18. nóvember). Kynning á niðurstöðum rannsóknar á námskeiðinu Opinber stjórnsýsla OSS111f í kjölfar þess að það var fært yfir í fjarnám [fyrirlestur]. Deildarfundur Stjórnmálafræðideildar, Félagsvísindasviði Háskóla Íslands (On-line).
Skipulögð framsetning og gott aðgengi að upplýsingum styrkir tengsl kennara o...University of Iceland
Ásta Bryndís Schram og Sigurbjörg Jóhannesdóttir. (2021, 30. október). Skipulögð framsetning og gott aðgengi að upplýsingum styrkir tengsl kennara og nemenda í fjarnámi [fyrirlestur]. Málstofa; The conversation is the relationship: Um aðgengi, gæði og réttmæti upplýsinga. Þjóðarspegillinn, ráðstefna í félagsvísindum, Félagsvísindasvið Háskóla Íslands. Reykjavík (on-line).
Upplifun nemenda af tengslum við kennara og umhyggju hans fyrir þeimUniversity of Iceland
Sigurbjörg Jóhannesdóttir og Ásta Bryndís Schram. (2021, 15. október). Upplifun nemenda af tengslum við kennara og umhyggju hans fyrir þeim í námskeiði sem kennt var í fjarnámi við Háskóla Íslands [fyrirlestur]. Málstofa: Háskólar: Nemendur og tengsl. Menntakvika, ráðstefna í menntavísindum, Menntavísindasvið Háskóla Íslands. Reykjavík (on-line).
Kobernio er viðbót (e. extension) við vafra sem leitar að heildartextum vísindaefnis á yfir 20.000 stöðum á Internetinu.
Þetta eru glærur með myndbandinu:
https://youtu.be/QZ6cV0zbqwM
Námskeið inni í námskeiði.
„Fyrst fannst mér skrýtið að vera að taka svona MOOC-námskeið sem hluta af öðru námskeiði en svo var það bara mjög gott“
Erindi á Menntakviku, rafrænni ráðstefnu í Menntavísindum á vegum Menntavísindasviðs Háskóla Íslands, 1.-2. október 2020.
https://menntakvika.hi.is
Í þessu erindi segi ég frá hvað nemendum í tveimur námskeiðum, í Upplýsingafræði á Félagsvísindasviði HÍ fannst um að taka MOOC námskeið hjá edX og Udemy, inni í HÍ-námskeiðum og fá þau hlutfallslega metin til námsmats út frá vinnuframlagi þeirra.
Upptaka með erindinu: https://youtu.be/yfathqMxkOo
Hvernig getum við fylgt eftir akademískum heilindum í fjarnámi.
Málstofa á Fjarmenntabúðum 18. febrúar 2021
Höfundar: Sigurbjörg Jóhannesdóttir, Harpa Dögg Kristinsdóttir og Guðný Sigurðardóttir.
Upplýsingar um fjarmenntabúðirnar
https://sites.google.com/view/fjarmenntabudir1802/fjarmenntabudir
Upptaka frá málstofunni:
https://youtu.be/8_QthvojBNE
Erindi á ráðstefnunni Menntakvika 2020 á vegum Menntavísindasviðs Háskóla Íslands, 1. - 2. október 2020.
Höfundar:
Ásta Bryndís Schram, lektor og kennsluþróunarráðgjafi á Heilbrigðisvísindasviði Háskóla Íslands og kennsluráðgjafi í Kennslumiðstöð Háskóla Íslands
Sigurbjörg Jóhannesdóttir, kennsluráðgjafi í Kennslumiðstöð Háskóla Íslands og aðjúnkt á Félagsvísindasviði Háskóla Íslands
Sigurbjörg Sigurgeirsdóttir, prófessor á Félagsvísindasviði
Ágrip:
Kynning. Námskeið í Opinberri stjórnsýslu á Félagsvísindasviði HÍ var kennt í staðnámi haustið 2018 og þeir nemendur sem ekki höfðu tök á að mæta í Háskólann gátu nálgast upptökur af fyrirlestrum á Kennsluvef Uglu. Haustið 2019 voru gerðar breytingar á kennsluháttum og námskeiðið eingöngu í boði í fjarnámi þar sem ekki var gert ráð fyrir neinni mætingu í skólann.
Markmið þessa erindis er að lýsa þeim rafrænu kennsluháttum sem voru notaðir í námskeiðinu haustið 2019, þeim stuðningi sem fékkst frá Kennslumiðstöð HÍ og hvaða máli hann skipti fyrir kennara. Sagt verður frá niðurstöðum samanburðargreiningar sem gerð var á námskeiðinu sem staðnámi með fjarnámsmöguleika og sama námskeiði í gegnum Internetið. Námsárangur nemenda, brottfall, áhorf á upptökur og niðurstöður miðmisseris- og kennslukannana var skoðaður.
Aðferð. Notuð var blönduð aðferð sem byggði á viðtölum við kennara, rýnihópaviðtölum við nemendur ásamt netkönnun nemenda. Gerð var tölfræðigreining á áhorfi á upptökur, hlutfalli nemenda sem luku námskeiðunum og námsárangri, ásamt niðurstöðum miðmisseris- og kennslukannana árin 2018 og 2019.
Niðurstöður sýna m.a. að brottfall nemenda er minna eftir að námskeiðinu er breytt í fjarnám, námsárangur nemenda er meiri og ánægja þeirra með námskeiðið miklu meiri. Einnig kemur fram að aðalástæða þess hversu vel tókst til er brennandi áhugi kennara á að nýta sem best þau rafrænu verkfæri sem eru í boði, sá stuðningur sem kennarinn fékk frá Háskólanum og gott samstarf við kvikmyndagerðarmann.
Umræður.
Niðurstöður sýna glöggt mikilvægi stuðnings við kennara sem hyggur á breytingar á kennsluháttum og ástæður þess að námskeiðið varð betra sem fjarnám en staðnám með fjarnámsívafi.
Vefslóð á upptöku með erindinu er á vefslóðinni: https://youtu.be/xnfrtVxWdJ8
Tungumálatorgið. Þekkingarmiðja og upplýsingavefur. Fyrirlestur á Málþingi Íslenskustofu, 27. janúar 2010.
Höfundar: Sigurbjörg Jóhannesdóttir og Þorbjörg St. Þorsteinsdóttir
Niðurstöður rannsóknar um opinn aðgang og hvernig við getum hugsanlega nýtt þær til að auka umræðu og gegnsæi í rannsóknarmenningu Íslendinga
Erindi
Málþing Vísindafélags Íslands um opinn aðgang
15. nóvember 2019, Þjóðminjasafnið
Glærur með erindi þar sem fjallað er um hver munurinn er á frjálsum aðgangi, opnum aðgangi, ókeypis aðgangi, kostuðum aðgangi og höfundaréttarvörðum aðgangi

1. Hvað er Sci-Hub?
Internetið og upplýsingaleitir
Háskóli Íslands
CC BY-SA 4.0
Sigurbjörg Jóhannesdóttir
Allt efni á þessum glærum er með afnotaleyfinu CC BY-SA 4.0 nema merki Sci-Hub sem Alexandra Elbakyan
er með copyright fyrir en leyfir notkun á undir „by source, fair use“ samkvæmt bandarískum höfundaréttarlögum.
2. Þessi mynd er eign Alexöndru
Elbakyan og er logo fyrir Sci-Hub.
Copyright: Alexandra sem gefur leyfi
til að nota myndina á efni sem fjallar
um Sci-Hub (by source, fair use)
https://en.wikipedia.org/w/index.php?c
urid=48743375
Sjóræningjavefur / Gagnagrunnur
Vísindaefni / Vísindagreinar
Stofnandi
Alexandra Elbakyn
16. apríl 2011
3.
4.
5. McKenzie, L. (2017, júlí 26). Sci-Hub’s cache of pirated papers is so big, subscription
journals are doomed, data analyst suggests. Sótt af
http://www.sciencemag.org/news/2017/07/sci-hub-s-cache-pirated-papers-so-big-
subscription-journals-are-doomed-data-analyst
Sci-Hub hýsir og veitir aðgang að
69% af öllum útgefnum
vísindagreinum í heiminum.
Niðurstöður tölfræðigreiningar
sýna að Sci-Hub getur afgreitt
99% allra beiðna sem berast.
6. Í gagnagrunni Sci-Hub (mars 2017) eru
68,9% af 81,6 milljón vísindagreinum sem
hafa verið útgefnar og eru skráðar hjá
Crossref.
Hlutfall vísindagreina úr hefðbundnum
áskriftartímaritum er 85,2%
Í fyrsta skipti í heiminum er næstum því allt
útgefið vísindaefni aðgengilegt í ókeypis
aðgangi fyrir alla sem eru með
Internetaðgang. Það gæti leitt til þess að
áskriftarmódel útgefenda verða ekki
rekstrarhæf.
Himmelstein, D. S., Romero, A. R., Levernier, J. G., Munro, T. A.,
McLaughlin, S. R., Tzovaras, B. G., & Greene, C. S. (2018).
Research: Sci-Hub provides access to nearly all scholarly
literature. ELife, 7, e32822. https://doi.org/10.7554/eLife.32822
10. Sci-Hub afgreiddi 28 milljónir skjala
frá 1. september 2015 til 29. febrúar 2016
Bohannon J (2016) Who's downloading pirated papers? Everyone. Science 352(6285): 508-512
https://doi.org/10.1126/science.352.6285.508
Rannsóknargögnin:
Bohannon J, Elbakyan A (2016) Data from: Who's downloading pirated papers? Everyone. Drya
Digital Repository. https://doi.org/10.5061/dryad.q447c
11. 120.400.000.000 krónur
6 mánuðir
ef 4.300 kr. aðgangur í 24 klst
Afgreiddar 28 milljónir greina (sept 2015 til og með feb2016)
20.066.000.000 kr. pr. mán
Fjöldi afgreiðslna frá Sci-Hub er alltaf að aukast
Voru tæpar 4,7 millj. afgreiðslur á mánuði.
Eru líklega öllu fleiri í dag þrátt fyrir endalausar lokanir á nýjar vefslóðir Sci-Hub
Editor's Notes
Í dag eru skráðar 100 milljónir af vísindatengdu efni hjá CrossRef, þar af 74% greinar, þe . 74 milljónir greina
Ef er miðað við 100 milljónir þá eru það 70% í dag
Ef er gert ráð fyrir að séu greinar þá eru það 95% af öllum útgefnum greinum (sem hafa doi númer).
Ef umreiknað – gert ráð fyrir að ALLIR hefðu leigt greinarnar frá útgefendum …. sem hefði aldrei verið raunin.