2. Yfirlit
Atvinnuleysistryggingar – almennar upplýsingar
Réttindi og skyldur.
Kynning á helstu þjónustuþáttum
Vinnumiðlun.
Ráðgjafaþjónusta.
Vinnumarkaðsúrræði.
Atvinnuleit
Hagnýt ráð
3. Vinnumálastofnun
Heyrir undir Velferðarráðuneytið
Fer með yfirstjórn vinnumiðlunar í landinu og daglega afgreiðslu
atvinnuleysistryggingasjóðs.
Starfar samkvæmt lögum
Nr. 54/2006 um Atvinnuleysistryggingar.
Nr. 55/2006 um Vinnumarkaðsaðgerðir.
Markmið laganna er
• Að veita einstaklingum viðeigandi aðstoð til að verða virkir
þátttakendur á vinnumarkaði.
• Að stuðla að jafnvægi milli framboðs og eftirspurnar eftir vinnuafli í
landinu.
5. Skráning - vinnumiðlun - ráðgjöf
Nýskráning og móttaka
Móttaka og skráning umsókna um atvinnu- og
atvinnuleysisbætur, vottorða og annarra fylgigagna.
Vinnumiðlun
Veitir m.a. upplýsingar um laus störf og starfstengd
vinnumarkaðsúrræði. (Tímapöntun hjá vinnumiðlara.)
Ráðgjafaþjónusta
Veitir upplýsingar og ráðgjöf varðandi atvinnuleit og möguleika
á námi samhliða henni. (Tímapöntun hjá náms- og starfsráðgjafa.)
Úrskurður bótaréttar
Afgreiðsla umsóknar og úrskurður bótaréttar getur tekið allt að
6 vikur frá því gögn berast til Greiðslustofu.
(Upplýsingar um stöðu umsóknar á Mínum síðum.)
6. Mínar síður
• Rafræn skjöl
Greiðsluseðlar (útreikningur atvinnuleysisbóta)
Launamiðar
Bréf
• Umsókn
Umsókn um atvinnuleysisbætur og skráning í atvinnuleit
Staða umsóknar
• Aðgerðir
Tilkynna um tilfallandi vinnu
Tilkynna um tekjur
Breyta persónuafslætti
Skráning í atvinnuleit án atvinnuleysisbóta (Valið ef breyta þarf persónuupplýsingum)
Skrá mig af atvinnuleysisbótum
Tilkynna orlof
9. Réttur til atvinnuleysisbóta
Almenn skilyrði
Launafólk á aldrinum 18 – 70 ára með búsetu og lögheimili á Íslandi.
Atvinnuleitendur þurfa einnig að vera staddir á landinu til að eiga rétt
til greiðslu bóta í atvinnuleit.
Krafa er gerð um virka atvinnuleit:
Vera fær til flestra almennra starfa. Skila þarf læknisvottorði ef
vinnufærni er skert.
Frumkvæði við atvinnuleit og vera reiðubúinn að taka starfi á
Íslandi sem greitt er fyrir skv. lögum og kjarasamningum.
Vilji og geta til að taka þátt í úrræðum samanber lög um
vinnumarkaðsaðgerðir.
Lengd bótatímabils
Bótatímabilið er 30 mánuðir.
10. Upphæð atvinnuleysisbóta
Grunnatvinnuleysisbætur
eru kr. 217.208.- á mánuði miðað við fullan bótarétt (100%)
Tekjutengdar atvinnuleysisbætur
Bætur eru tekjutengdar í þrjá mánuði í upphafi bótatímabils þannig að
greiddar eru grunnbætur fyrsta hálfa mánuðinn en síðan tekur
tekjutengingartímabilið við.
Launamaður Miða skal við meðaltal heildarlauna á 6 mánaða tímabili sem hefst tveimur
mánuðum áður en umsækjandi varð atvinnulaus og eru greidd 70% af heildarlaunum
viðmiðunartímabilsins.
Sjálfstætt starfandi Miða skal við síðasta heila tekjuár.
Hámark tekjutengdra bóta: kr. 342.422.- á mánuði.
Greiðsla vegna barna: Vegna hvers barns á framfæri yngra en 18 ára eru
greiddar kr. 8.688.- á mánuði til viðbótar, óháð
hlutfalli bótaréttar.
11. Útborgun atvinnuleysisbóta
Atvinnuleysisbætur eru greiddar út fyrsta virkan dag í mánuði.
Greitt er fyrir einn mánuð í einu sem nær yfir tímabilið 1. – 31. hvers
mánaðar, greitt eftirá.
Veikindi
Tilkynna skal veikindi sem hindra virka atvinnuleit.
5 daga veikindaréttur er á hverju 12 mánaða tímabili eftir 5 mánuði á
atvinnuleysisskrá. Má taka í tvennu lagi.
Ferðalög
• Atvinnuleysisbætur eru ekki greiddar ef dvalið er erlendis.
• Tilkynna þarf um dvöl erlendis fyrir brottför og óska eftir skráningu
í orlof (Mínar síður/Aðgerðir/Tilkynna orlof)
12. Reglubundin samskipti
Staðfesting á atvinnuleit fer fram í gegnum
Atvinnuleit þarf að staðfesta 20.- 25. hvers mánaðar þann tíma sem
einstaklingur er skráður í atvinnuleit.
Ef staðfest er á tímabilinu 26. – 3. næsta mánaðar seinkar greiðslum
um 5 virka daga.
Þeir sem ekki staðfesta atvinnuleit á tilsettum tíma eru afskráðir.
13. Staðfesting á atvinnuleit
Þegar atvinnuleit
hefur verið staðfest
berst tölvupóstur um
að skráning hafi
tekist.
Berist tölvupóstur
ekki er mikilvægt að
hafa strax samband
við þjónustu-
skrifstofu
Vinnumálastofnunar
14. Atvinnuleit
innanlands og í Evrópu
• Upplýsingar um störf í boði innanlands á
www.vinnumalastofnun.is
• Tenglasafn á aðrar ráðningarþjónustur á heimasíðu
Vinnumálastofnunar (Störf í boði/Aðrar vinnumiðlanir)
• Evrópsk vinnumiðlun á www.eures.europa.eu
(Störf í boði/Eures)
• Vinnumiðlarar og ráðgjafar Vinnumálastofnunar aðstoða
fólk við leit að starfi og veita nánari upplýsingar.
15. Atvinnuleit í Evrópu
Vottorð U-2
Veitir þeim sem eiga staðfestan rétt til atvinnuleysisbóta heimild til að leita
að starfi erlendis í allt að þrjá mánuði á greiddum atvinnuleysisbótum frá
Íslandi. (Gildir aðeins um lönd í Evrópu)
Afgreiðsla umsókna tekur 3-4 vikur.
Nánari upplýsingar á þjónustuskrifstofum VMST.
ATH. Ekki er heimilt að fara til útlanda samhliða greiðslu
atvinnuleysisbóta nema með U-2
Eures - Evrópsk vinnumiðlun
Upplýsingar og ráðgjöf um atvinnuleit í Evrópu.
16. Hlutastörf og tilfallandi vinna
Hlutastarf
Breyta þarf rafrænni umsókn á Mínum síðum, skrá þar rétt starfshlutfall í
hlutastarfi og hlutfall í atvinnuleit.
Fylla út áætlun um tekjur vegna hlutastarfs á Mínum síðum (Aðgerðir/tilkynna
um tekjur/tekjur af hlutastarfi).
Tilfallandi vinna
Tilkynna um tilfallandi vinnu til VMST í síðasta lagi með dags fyrirvara á
Mínum síðum (Aðgerðir/tilfallandi vinna).
Heimilt að tilkynna samdægurs við sérstakar aðstæður.
Á við alla tilfallandi vinnu óháð lengd, tíma eða launum.
Tilkynna um heildartekjur inn á Mínum síðum þegar laun hafa verið
greidd út (Aðgerðir/tilkynna um tekjur/tilfallandi tekjur).
18. Tilkynning um tekjur - Mínar síður
Tilkynna þarf um allar tekjur og styrki á Mínar síður.
19. Frítekjumark v/tilfallandi vinnu
Frítekjumark er kr. 63.476.- á mánuði
Dæmi: Heildartekjur kr. 73.476
Frítekjumark kr. 63.476
Tekjur umfram frítekjumark kr. 10.000.-
Helmingur af þeim tekjum sem eru umfram frítekjumarkið
mynda frádrátt á greiðslu bóta við samkeyrslu við upplýsingar
RSK eftir tvo mánuði.
Frádráttur vegna tekna væri þá í þessu dæmi kr. 5.000.-
20. Sjálfstætt starfandi
• Ekki má opna launagreiðendaskrá samhliða
atvinnuleysisbótum.
• Einstaklingur getur ekki verið í sjálfstæðum rekstri og
fengið greiddar atvinnuleysisbætur samhliða.
• Þeim sem býðst vinna sem verktakar á eigin kennitölu
verða að skrá sig ekki atvinnulausa meðan
verkefni/vinnu stendur.
•Tilkynna þarf um verktakavinnu fyrirfram.
•Skila þarf afriti af reikningi fyrir vinnuna.
21. Upplýsingaskylda
Nauðsynlegt er að tilkynna um breytingar á högum sem snerta
atvinnuleitina s.s.
Heimilisfang, símanúmer, netfang.
Vinnu (tilfallandi vinnu, hlutastarf, fullt starf).
Tekjur (t.d. laun, lífeyrisgr., fjármagnstekjur, styrki s.s. líkamsræktarstyrk og fjárhagsaðstoð).
Þátttöku í námi samhliða atvinnuleit.
Orlof og ferðir utanlands án U-2.
Veikindi sem hindra virka atvinnuleit.
Vinnufærni (Skert vinnufærni eða óvinnufærni).
Ef ekki er tilkynnt um breytingar þá getur það leitt til biðtíma/viðurlaga
Biðtími/viðurlög: Ekki eru greiddar atvinnuleysisbætur þann tíma sem biðtími varir.
Til að biðtími telji þarf atvinnuleitandi í virkri atvinnuleit að sinna skyldum atvinnuleitanda gagnvart Vinnumálastofnun
og staðfesta atvinnuleit mánaðarlega.
22. Biðtími og viðurlög
Komið getur til biðtíma eða viðurlaga í tengslum við...
Starfsmaður segir upp starfi.
Starfsmaður er valdur að eigin uppsögn.
Námsmaður hættir námi án lokaprófs.
Starfi eða atvinnuviðtali hafnað.
Þátttöku í vinnumarkaðsaðgerðum hafnað eða mætingarskylda ekki uppfyllt.
Er í námi án þess að hafa sótt um námssamning.
Látið hjá líða að veita upplýsingar um vinnu, tekjur, dvöl erlendis eða tilkynna
um breytingar á högum (heimilisfang, símanúmer, netfang).
Málum vísað til Greiðslustofu til úrskurðar.
Kallað eftir skýringu atvinnuleitanda áður en úrskurðað er í málinu.
Einstaklingur sem hefur fengið greiddar atvinnuleysisbætur í 24 mánuði eða lengur – og fær þá viðurlög –
á ekki rétt á bótagreiðslum aftur fyrr en hann hefur áunnið sér nýtt bótatímabil, þ.e. . hafa starfað
samfellt á innlendum vinnumarkaði í a.m.k. 24 mánuði til að eiga rétt á bótum á ný.
23. Vinnumarkaðsúrræði
Tegundir vinnumarkaðsúrræða
Starfstengd úrræði, námskeið, námsúrræði, atvinnutengd
endurhæfing og ráðgjöf
Markmið vinnumarkaðsúrræða
Sporna gegn atvinnuleysi
Auðvelda fólki að halda virkni
Stuðla að tengslum við atvinnulífið
Endurmenntun – viðhalda og öðlast nýja hæfni
24. Starfstengd vinnumarkaðsúrræði
Vinnustaðaþjálfun (hámark 8 vikur)
Starfsþjálfun (allt að 6 mán.)
Verkþjálfun (t.d. Fjölsmiðjan – hámark 12 mán.)
Sérstök átaksverkefni (allt að 6 mán.)
Sjálfboðaliðastarf
Atvinnutengd endurhæfing (3 mánuðir)
Frumkvöðlastarf innan fyrirtækis eða stofnunar (allt að 6 mán.)
Þróun eigin viðskiptahugmyndar (allt að 6 mán.)
Nánari upplýsingar á heimasíðu Vinnumálastofnunar
www.vinnumalastofnun.is
25. Önnur úrræði í boði hjá VMST
• Náms- og starfsráðgjöf
Tímpantanir hjá ráðgjöfum
• Áhugasviðsgreining
Í leit að starfi – upplýsingar hjá ráðgjöfum
• Ferilskrárgerð - kynningarbréf
Leiðbeiningar á heimasíðu og aðstoð hjá ráðgjöfum
• Ýmis námskeið
Nánari upplýsingar á heimasíðu og hjá þjónustuskrifstofum
26. Atvinnuleysisbætur og nám
Almennt er nám samhliða atvinnuleit og greiðslu atvinnuleysisbóta ekki
leyfilegt. Að uppfylltum ákveðnum skilyrðum er heimilt að stunda nám
samhliða atvinnuleit sbr. ákvæði reglugerðar nr. 1223/2015 og
1224/2015.
Slíkt nám atvinnuleitenda verður að vera samþykkt af Vinnumálastofnun
og uppfylla skilyrði skv. reglugerð svo hægt sé að gera námssamning
vegna námsins. (Sjá nánar á www.vinnumalastofnun.is)
Þeim sem ákveða að hætta virkri atvinnuleit um lengri tíma og fara í
formlegt nám er bent á að leita til Lánasjóðs íslenskra námsmanna.
27. Nám samhliða atvinnuleit - viðmið
• Nám í dagskóla á framhaldsskólastigi er ekki heimilt samhliða atvinnuleit
og greiðslu bóta.
• Að uppfylltum ákv. skilyrðum og að höfðu samráði við náms- og
starfsráðgjafa er hægt að gera námssamning um að hámarki 33 % nám í
fjarnámi/kvöldskóla á framhaldsskólastigi.
• Gerður er námssamningur vegna náms á háskólastigi – 10 ECTS ein.
Með fleiri einingum á misseri skerðast bætur í ákv. hlutfalli.
Nánari upplýsingar á heimasíðu Vinnumálastofnunar og hjá náms- og
starfsráðgjöfum.
28. Námskeið - Námsstyrkir
Námskeið
skipulögð af Vinnumálastofnun eru atvinnuleitendum með staðfestan
bótarétt að kostnaðarlausu. Upplýsingar og skráning á heimasíðu
Vinnumálastofnunar og hjá ráðgjöfum.
Námsstyrkur
er veittur til greiðslu hluta námskeiðsgjalda vegna annarra námskeiða en þeirra
sem Vinnumálastofnun stendur fyrir. Skilyrði er að námið auki líkur á vinnu og
að umsækjandi sé kominn með staðfestan bótarétt.
Námsstyrkur getur mest verið 50% af námskeiðsgjaldi og að hámarki
kr. 70.000.- á ári.
• Umsókn um námsstyrk skal skila til ráðgjafa, (eyðublað á www.vinnumalastofnun.is)
Með umsókninni þurfa að fylgja allar helstu upplýsingar um námið.
• Sækja þarf um áður en námskeið hefst.
• Skriflegt svar gildir sem staðfesting á námsstyrk frá Vinnumálastofnun.
29. Styrkir og afsláttarkjör
Búferlastyrkur
Heimilt er að veita styrk vegna búferlaflutnings innanlands frá lögheimili
til þess staðar sem lögheimili er flutt í því skyni að sækja vinnu hjá nýjum
atvinnurekanda sem hefur sannanlega boðið fastráðningu í starf. Með
umsókninni þurfa að fylgja reikningar fyrir útlögðum kostnaði.
Stéttarfélög
bjóða fjölbreytta þjónustu þeim félagsmönnum sínum, sem hafa
misst vinnu og fá greiddar atvinnuleysisbætur frá Vinnumálastofnun.
Atvinnuleitendur hafa val um það hvort þeir halda áfram að greiða félagsgjald í sitt stéttarfélag eftir að
þeir hætta störfum og skrá sig í atvinnuleit. Með áframhaldandi greiðslu félagsgjalds er áunnum
réttindum viðhaldið.
Sum sveitarfélög bjóða atvinnuleitendum fríðindi, t.d. frítt í sund.
Atvinnuleitendum er bent á að leita upplýsinga á skrifstofu síns sveitarfélags.
30. Skipulögð atvinnuleit
Ferilskrá og kynningarbréf
Leiðbeiningar um gerð ferilskrár og kynningarbréfa er að finna á heimasíðu
Vinnumálastofnunar. Ráðgjafar veita aðstoð ef óskað er.
Nálgast atvinnuleit eins og vinnu
með ákveðin verkefni á hverjum degi / í hverri viku.
Setja sér markmið
Skrifleg og mælanleg t.d. fyrir eina viku í senn.
Halda skrá yfir:
Störf sem sótt er um og svör sem hafa borist við umsóknum
Atvinnuviðtöl sem farið er í
Fyrirspurnir og óformlegar umsóknir
Tengiliði í tengslaneti
Ráðningastofur og samskipti við þær
30
31. Ferilskrá sem viðhengi
Ferilskrá er mikilvægt í atvinnuleitinni. Til að hún komi að gagni í vinnumiðlun
hjá Vinnumálastofnun er nauðsynlegt að setja ferilskrána sem viðhengi aftast í
rafrænu umsóknina á Mínum síðum á heimasíðu Vinnumálastofnunar áður en
umsóknin er send.