1. Space Sniffer- Harða disks
þefarinn-Link:
http://download.cnet.com/SpaceSniffer/3
000-18512_4-10913555.html
Veistu hvað er í tölvunni þinni? Ég meina veistu algjörlega hvað er inn á
harða disknum þínu? Og veistu hvað er að taka upp allt plássið þitt og þér
finnst skrítið að þú eigir bara 72 mb eftir af 200 gb harða disknum þínum
en þú áttir þig ekki alveg á því hvað er að taka allt þetta pláss?
Þá lítur út eins og þú þurfir forrit eins og Space Sniffer(bara fyrir
Windows) sem getur hjálpað þér að finna út úr þessum málum.
Space Sniffer er forrit sem að finnur hvar allt plássið í tölvunni þinni er að
fara í og er mjög gott ef að þú ert með fulla tölvu af ýmsum skjölum og þú
veist kannski ekki hvar allt er og hvað tekur mikið pláss.
Þetta er mjög sniðugt og einfalt forrit sem ég persónulega hef haft mikla
not fyrir í gegnum mína tíð. Forrit er frítt, þannig að þú hefur engu að tapa
en þrátt fyrir einfaldleika þess er margt hægt að gera með því og lítur það
alls ekkert illa út, mætti kannski segja að það væri svolítið augnakonfekt
fyrir mann.
En þetta er flott forrit fyrir alla sem vilja losa heilu tugina af gb úr tölvunni
sinni eða bara fyrir þá sem vilja halda tölvunni hreinni og snyrtilegri. Ég
mæli með því fyrir alla og er þetta ljómandi gott forrit byggt á sniðugri en
einfaldri hugmynd sem leysir og auðveldar margar aðgerðir því ekki er svo
þægilegt að sjá allt um gagnamang í venjulegri tölvu með Windows Xp.
2. Kostir:
Mjög einfalt og notendavænt
Þarf ekki að setja upp forritið í tölvunni heldur bara keyra það af
upprunalegu skránni
Lítur vel út
Frítt(en má gefa pening til fyrirtækisins ef maður er ánægður með forritið)
Auðveldar manni að sjá um harða diska og plássið sem þeir taka.
Gallar:
Tekur smá tíma að hlaða sig en einungis eina til tvær mínútur