Ministry of Ideas on the Icelandic Opportunity for the G20 nations
Gildi. Orðspor. Ímynd. Kynning í Hugmyndaráðuneytinu
1. Höfuðgildi Íslendinga fyrir
og eftir hrun
Gildi. Orðspor. Ímynd
Gunnar Hersveinn
Kynning hjá Hugmyndaráðuneytinu
28. febrúar 2009
Gunnar Hersveinn Hugmyndaráðuneytið, 28. febrúar 2008
2. Gildin í samfélaginu
• Markmið bókarinnar Orðspor – gildin í
samfélaginu:
• Fjallar um viðleitni einstaklinga til að bæta
samband sitt við samferðafólk, borgina,
landið, samfélagið og heiminn.
• Markmið bókarinnar Gæfuspor – gildin í
lífinu:
• Fjallar um að setja sér gildi og leiðarljós.
Gunnar Hersveinn Hugmyndaráðuneytið, 28. febrúar 2008
3. Orðspor
• Góður orðstír hefur ævinlega verið hátt
skrifaður á Íslandi. Ekki er hann þó metinn
til fjár því hann er um heiður og mannorð
sérhvers manns. Orðspor þjóða og
fyrirtækja hefur á hinn bóginn eftir því sem
hnattvæðingin ágerist orðið æ dýrmætara.
Orðspor er nátengt ímynd: rýra má
orðspor, flekka, brjóta niður eða byggja
upp. Gott orðspor er gulls ígildi en slæmt
orðspor ratar víða.
Gunnar Hersveinn Hugmyndaráðuneytið, 28. febrúar 2008
4. Orðspor – orðstír
• Ágætt er að beita hugtakinu orðspor til að
lýsa ásýnd og ímynd félaga, fyrirtækja og
þjóða en nota fremur orðið orðstír um
einstaklinga.
• Fullyrt hefur verið að orðspor þjóðar geti
verið margra milljarða virði í viðskiptum.
• Orðspor fyrirtækja og stofnana snýst ekki
aðeins um viðskipti heldur einnig ímynd
þeirra og traust.
Gunnar Hersveinn Hugmyndaráðuneytið, 28. febrúar 2008
5. Lykilspurningar
• Hvaða gildi eru þýðingarmest heima?
• Hvaða gildi eru þýðingarmest í starfinu?
• Hvaða gildi eru þýðingarmest í
samfélaginu?
Gunnar Hersveinn Hugmyndaráðuneytið, 28. febrúar 2008
6. Hvað eru gildi?
• Gildi er víðtækt siðferðilegt hugtak sem
um verðmæti sem bæta einstaklinga eða
samfélag.
• Dyggðir: að efla atferli, lærðar
• Tilfinningar: að rækta meðfæddar kenndir
• Viðhorf: Að tileinka sér heillavænlega
afstöðu.
Gunnar Hersveinn Hugmyndaráðuneytið, 28. febrúar 2008
7. Dyggð
• Mannkostur, siðferðilegur eiginleiki
manna. Ekki meðfædd, gengur ekki
kaupum og sölum, er áunnin, lærð, æfð.
• Vert að hrósa fyrir, eiginleikar sem prýða
fólk. (Hugrekki)
• Sammannlegir þættir sem gera gott fólk úr
börnum.
Gunnar Hersveinn Hugmyndaráðuneytið, 28. febrúar 2008
8. Tilfinningar
• Lífeðlislegar en jafnframt tengdar vilja
mannsins og viðhorfi hans til hluta.
• Móta manneskjuna og gefa henni
merkingu. Leggjum RÆKT við. (Gleði)
Gunnar Hersveinn Hugmyndaráðuneytið, 28. febrúar 2008
9. Viðhorf - hugarfar
• Jákvætt hugarfar ásamt gagnrýnni hugsun
endurskapar.
• Jákvæð hugsun tekur þátt í því að breyta
heiminum.
• Jákvætt hugarfar er galdurinn á bak við
allan árangur. Það er þó ekki alltaf
meðfætt og því þarf að temja sér það
Gunnar Hersveinn Hugmyndaráðuneytið, 28. febrúar 2008
10. Forsenda velferðar
• Dyggðir: Æfa þær dyggðir sem gera
mann að því sem maður vill vera.
• Tilfinningar: Gangast við tilfinningum,
prófa þær, takast á við, rækta.
• Viðhorf til annarra og sjálfs sín ræður því
hvernig manni líður.
Gunnar Hersveinn Hugmyndaráðuneytið, 28. febrúar 2008
11. Höfuðdyggðir til forna
• Viska
• Réttlæti
• Hugrekki
• Hófstilling
• Trú
• Von
• Kærleikur
Gunnar Hersveinn Hugmyndaráðuneytið, 28. febrúar 2008
12. Íslenskar dyggðir að fornu
• góð heilsa • skyldurækni
• glaðlyndi • víðförli
• hófsemi • hugrekki
• viska • vinátta
• kurteisi • tala íslensku
• orðstír • skrá sögur
• gestrisni • námsfýsi
• þolgæði
Gunnar Hersveinn Hugmyndaráðuneytið, 28. febrúar 2008
15. Höfuðlöstur tíðarandans fyrir hrun
• Flestallir segja það vera græðgina sem
reyndar má einnig kalla taumleysi eða
agaleysi
• Andstæðan er nægjusemi og sjálfsagi.
Eða að afmarka sér bás og hlúa vel að
honum.
Gunnar Hersveinn Hugmyndaráðuneytið, 28. febrúar 2008
16. Græðgi <–>Nægjusemi
• Hamingja felst ekki í því græða: að
fullnægja sem flestum hvötum, löngunum,
þrám og hugmyndum heldur í nægjusemi:
að fækka löngunum sem á að fullnægja og
aga þær.
• Nægjusemi er andstæðan við græðgi sem
margir eru nú sammála um að sé
höfuðlöstur Íslendinga.
Gunnar Hersveinn Hugmyndaráðuneytið, 28. febrúar 2008
17. Gallup-könnun árið 2000
• Hreinskilni
• Dugnaður
• Heilsa
• Heiðarleiki
• Jákvæðni
• Traust
• vinátta/fjölskylda
Gunnar Hersveinn Hugmyndaráðuneytið, 28. febrúar 2008
18. Gildin í samfélaginu 2008 – könnun
- gildin fyrir hrun
• Efnishyggja
• Skammsýni
• Menntunarmöguleikar
• Óvissa um framtíð
• Spilling
• Yfirstétt
• Efnislegar þarfir
• Eyðing auðlinda
• Kynjamisrétti
• Skömm
Gunnar Hersveinn Hugmyndaráðuneytið, 28. febrúar 2008
20. Umræða
• Hvaða lífsgildi ættu Íslendingar helst að
rækta eða efla með sér á næstu árum,
eftir hrunið í okt 2008?
Gunnar Hersveinn Hugmyndaráðuneytið, 28. febrúar 2008
22. Verk vel unnið
• Skilgreiningin á verki vel unnu er að það
búi yfir afbragðs gæðum og sé
samfélagslega ábyrgt.
• Samábyrgð verður eitt af þeim gildum sem
munu rísa.
Gunnar Hersveinn Hugmyndaráðuneytið, 28. febrúar 2008
23. Lífsreglur - gildi
• Setja sjálfum sér leiðarljós eða lífsreglur.
• Vel þú fjögur gildi sem þú vilt hafa að
leiðarljósi í lífi þínu á næstunni?
• Veljið fjögur gildi sem þið viljið hafa að
leiðarljósi í samfélaginu á næstunni?
Gunnar Hersveinn Hugmyndaráðuneytið, 28. febrúar 2008
24. Heiðarleiki <-> Samvinna
• Heiðarleiki og samvinna eiga vel saman.
Að vera heill í samskiptum við aðra og
sýna vilja til vinna saman á
jafnræðisgrundvelli. Þetta kemur í veg fyrir
fordóma og felur í sér umburðarlyndi.
Gunnar Hersveinn Hugmyndaráðuneytið, 28. febrúar 2008
25. Ábyrgð <-> Traust
• Ábyrgð og traust eiga vel saman.
Samábyrgð er nauðsynleg í hverju
samfélagi og fyrirtæki. Traustið er límið
sem heldur hverju samfélagi og fyrirtæki
saman. Ef það er ekki til staðar hrynur
það. Sá sem ber ábyrgð verður
nauðsynlega að ávinna sér traust
samstarfsmanna sinna.
Gunnar Hersveinn Hugmyndaráðuneytið, 28. febrúar 2008
26. Næsta orðspor?
• Hjálpsemi • Að tala íslensku
• Gestrisni • Menntun/þekking
• Hófsemd • Friðarmenning
• Viska • Náttúruvernd
• Þolgæði • Menning
• Hugrekki • Sanngirni
• Vinátta • Traust
• Jöfnuður • Samvinna
• Gleði • Íslenski hesturinn
Gunnar Hersveinn Hugmyndaráðuneytið, 28. febrúar 2008
27. Aðferðin
• Lifandi umræður í hópum
• Koma sér saman um gildi sem eru
leiðarljós
• Koma sér saman um gildi sem þarf að efla
• Koma sér saman um aðferðir til að
innleiða þau: gera eitthvað markvisst í
anda gildanna.
• Gildi eru ekki skraut heldur kjarni
Gunnar Hersveinn Hugmyndaráðuneytið, 28. febrúar 2008
28. Gildi fyrir hrun
• Græðgi • Einstaklingshyggja
• Taumleysi • Óbilandi bjartsýni
• Agaleysi • Kraftur, hugrekki
• Hroki (Best í heimi) • Óútreiknanleg hegðun
• Framsækni • Forysta
• Þrautseigja • Yfirburðir
Gunnar Hersveinn Hugmyndaráðuneytið, 28. febrúar 2008
29. Græðgi og agaleysi
• Græðgi í viðskiptalífinu var dyggð. Græðgin var
orðin tákn fyrir útfrás, framtakssemi, frumkvöðla
og þá sem ná árangri.
• Græðgi og agaleysi eru þó óhjákvæmilega efst á
lista yfir þá ókosti sem venjulegt fólk vill yfirleitt
vinna bug á. Græðgin tekur nefnilega ekki tillit til
umhverfisins og gætir ekki að réttindum annarra
sem traðkað er á.
Gunnar Hersveinn Hugmyndaráðuneytið, 28. febrúar 2008
30. Ný ríkisstjórn eftir hrun
• „Ríkisstjórn sem hrindi í framkvæmd
brýnum og mikilvægum aðgerðum, einkum
í þágu heimila og atvinnulífs, til
endurreisnar bankakerfisins, á sviði
endurbóta í stjórnsýslu og aðgerðum í
þágu aukins lýðræðis og opins og
heiðarlegs samfélags. “
Gunnar Hersveinn Hugmyndaráðuneytið, 28. febrúar 2008
31. Ný ríkisstjórn
• „ Stjórnin byggir því á mjög aðhaldssamri
og ábyrgri stefnu í efnahags- og
ríkisfjármálum en mun jafnframt hafa í
heiðri félagsleg gildi, hugmyndafræði
sjálfbærrar þróunar, kvenfrelsi, jöfnuð
og réttlæti. “
Gunnar Hersveinn Hugmyndaráðuneytið, 28. febrúar 2008
32. Gildi eftir hrun
• Jöfnuður • Félagshyggja
• Samvinna • Sjálfbær þróun
• Lýðræði • Réttlæti
• Heiðarleiki • Nægjusemi
• Fjölskylda/vinátta • Auðmýkt
• Virðing • Nýsköpun
Gunnar Hersveinn Hugmyndaráðuneytið, 28. febrúar 2008
33. Auðmýkt
• Auðmýktin virðist andstæð hugmyndinni:
„Markaðssettu sjálfan þig: Ég er frábær, ég
er einstakur og læt engan bilbug á mér
finna, kemst þangað sem ég vil og hvað
sem það kostar. Ég þekki leyndarmálið um
velgengni.“
Gunnar Hersveinn Hugmyndaráðuneytið, 28. febrúar 2008
34. Hrós
• Vandinn við dyggðir eins og nægjusemi og
auðmýkt eru að það má alls ekki gorta af
þeim í útlöndum. Þannig gætu
hvorki forsetinn né önnur fyrirmenni mært
nægjusemi og auðmýkt Íslendinga í
veislum eða flutt ræður um að við vildum
alls ekki selja risafyrirtækjum náttúruperlur
- hvað sem það kostaði. Ef til vill væri þó í
lagi að monta sig af raunverulegu jafnrétti?
Gunnar Hersveinn Hugmyndaráðuneytið, 28. febrúar 2008
35. Umönnun
• Umhyggja, umönnun og uppeldi varð
einnig undir. Gildin sem allir segja að vegi
þungt, gildi eins og umhyggja og hæfnin til
að iðka hana og reynslan af henni eru í
raun of lítils metin. Framlag þeirra sem
leggja stund á umhyggju er vanmetið en
þeirra sem leggja stund á tæknileg
viðfangsefni og viðskipti er ofmetið.
Gunnar Hersveinn Hugmyndaráðuneytið, 28. febrúar 2008
36. Hagsmunir - Gildi
• Megin hagsmunaaðilar bak við umhyggju
eru meðal annars börn, aldraðir, fatlaðir og
sjúklingar.
• Megin hagsmunaaðilar á bak við
fjármálastörf eru meðal annars auðmenn,
fyrirtæki og hvítir miðaldra karlmenn.
Gunnar Hersveinn Hugmyndaráðuneytið, 28. febrúar 2008
37. Karllæg gildi
• Hefðbundin karllæg gildi eru til að mynda:
völd, skilvirkni, árangur, regluveldi,
íhaldssemi, stöðlun, samkeppni, agi,
hlutlægni og formfesta.
Gunnar Hersveinn Hugmyndaráðuneytið, 28. febrúar 2008
38. Kvenlæg gildi
• Kvenlæg gildi eru aftur á móti: samskipti,
samvinna, skilningur, umhyggja, sköpun,
innsæi, lítil samkeppni, þolinmæði,
huglægni og vingjarnleiki.
Gunnar Hersveinn Hugmyndaráðuneytið, 28. febrúar 2008
39. Umræða
• Gæti ímynd Íslands gæti verið hófsöm?
• Og höfuðgildin verið nægjusemi, auðmýkt,
jafnrétti og sjálfbærni?
• (Nægjusemi og auðmýkt eru í mótsögn við
efnishyggju og hraðasamfélag og virðast
ekki söluvænleg ímynd. En sennileg ágæt
lóð á vogarskálina.)
Gunnar Hersveinn Hugmyndaráðuneytið, 28. febrúar 2008
41. Ímynd Íslands
• Styrkur, staða og stefna:
• “Mikilvægt er að tryggja að Ísland verði áfram
„best í heimi“ – land sem býður þjóð sinni mestu
lífsgæði sem völ er á. Forsenda þess er að
skapa skilyrði fyrir fjölbreytt, framsækið
• þekkingarsamfélag sem skarar fram úr á sviði
sjálfbærrar nýtingar hreinnar náttúru, kraftmikils
• atvinnulífs, frumlegrar menningar og skapandi
mannauðs.”
Gunnar Hersveinn Hugmyndaráðuneytið, 28. febrúar 2008
42. Klisjan
• Klisjan um Íslendinga fjallar oft um óbilandi
hugrekki einstaklinga og yfirburði í
samskiptum við aðra.
• “Hvers vegna einkennda sjálfshól og
yfirburðahyggja þessar sjálfsmyndir
Íslendinga? Er skýringin kannski
vanmáttarkennd og nagandi efi um eigin
getu? “ (S.Í)
Gunnar Hersveinn Hugmyndaráðuneytið, 28. febrúar 2008
43. Ímynd Íslands
• “Aðlögunarhæfni, þrautseigja, sköpunargleði,
óbilandi bjartsýni, úrræðagóðir, framkvæma hið
ógerlega, kraftmikil atvinnusköpun,
tjáningarfrelsi, öryggi og frelsi til athafna,
agaleysi, djörf og óútreiknanleg hegðun,
náttúrulegur kraftur.”
• Hugmyndir um Íslendinga sem yfirburðaþjóð, eru
enn algengar hérlendis og hafa verið efni í
ræðum forystumanna þjóðarinnar á
undanförnum árum.
Gunnar Hersveinn Hugmyndaráðuneytið, 28. febrúar 2008
44. Tímamót
• Það eru tímamót. Tíðarandi
efnishyggjunnar hefur liðið undir lok.
• Hugtök eins og jöfnuður, samvinna,
lýðræði, samábyrgð, nægjusemi,
sjálfbærni láta nú á sér kræla og gætu
einkennt næsta tíðaranda.
• Hvað verður um óbilandi bjartsýni, frelsi og
náttúrulegan kraft?
Gunnar Hersveinn Hugmyndaráðuneytið, 28. febrúar 2008
46. Jákvæðni
• Jákvæð hugsun er mikilsverð þegar
endursköpun á sér stað því jákvætt
hugarfar ásamt gagnrýnni hugsun mun
endurskapa samfélagið. Slíkt hugarfar er
galdurinn á bak við allan árangur. En það
er ekki meðfætt og því þarf að temja sér
það ásamt víðsýni.
Gunnar Hersveinn Hugmyndaráðuneytið, 28. febrúar 2008
47. Velferð
• Forsenda velferðar er að efla þau gildi
sem við viljum reisa samfélag okkar á,
eins og virðingu og jafnrétti, rækta þær
tilfinningar sem eru eftirsóknarverðar eins
og gleði og samlíðun og með því að
tileinka sér heillavænleg viðhorf til
hlutanna.
Gunnar Hersveinn Hugmyndaráðuneytið, 28. febrúar 2008