Good Stuff Happens in 1:1 Meetings: Why you need them and how to do them well
Youtube1
1. Upptökur á Yöutube
Við upptökur er hægt að nota stafrænar vídeóvélar, sumar ljósmyndavélar og
síma og að sjálfsögðu tölvu með vefmyndavél. Ef tölva er ekki notuð verður að
flytja upptökuna í tölvuna áður en hún er flutt yfir á youtube. Til einföldunar
miðast þessar leiðbeiningar eingöngu við youtube, en til eru fleiri opin svæði þar
sem hægt er að geyma þær eins og t.d. teachertube, vimeo , screencast...
Þeir sem ekki hafa skráð sig áður inn á http://www.youtube.com smella á Create
Account ofarlega til vinstri. Gefa þarf upp netfang og velja lykilorð. Fyrir þá sem
eru skráðir hjá Google, þ.e. hafa gmail, nota google docs o.fl. google þjónustur er
nóg að smella á sign in here (sjá myndina hér fyrir neðan) og skrá sig inn með
gmail notandanafni og lykilorði.
Þegar flytja á upptöku yfir á youtube.com er smellt á Upload sem er ofalega til
hægri og síðan Select files from your computer og velja upptökuna í tölvunni.
Jón Jónasson 1
2. Þegar skráin er komin inn í youtube er hægt að gefa henni heiti og skrifa stutta
lýsingu ef vill. Til hægri eru svo stillingar fyrir aðgag (sjá myndina hér að neðan).
Þar þarf annað hvort að velja Public eða Unlisted því ef Private er valið getur
einginn séð þetta nema valdir youtube notendur. Í reitnum Link to this video: er
slóðin sem skila á í verkefnaskilin.
Til að skoða síðar meir það sem maður hefur hlaðið inn er smellt á
notandanafnið lengst til hægri og þar valið My Videos.
Jón Jónasson 2