Oft þegar ég er að kenna eða í ráðgjöf við minni fyrirtæki og frumkvöðla sé ég að hugtakið markaðsmál er ekki skýrt í huga margra. Það er ekkert skrýtið. Við markaðsfólkið erum ekkert að rokka feitt í því að markaðssetja okkur sjálf. Þess vegna setti ég saman þessar glærur til að tryggja að við værum öll á sömu blaðsíðu - og að hjálpa til við að eyða út ímynd okkar markaðsfólks sem bara auglýsingafólks eða einhverra sem selja notaða bíla ;)