A geologist from Iceland named Oddur Sigurðsson gave a lecture at Juventa School on April 13, 2011. The lecture discussed Iceland's geology. Photos were taken of the lecture by Sigurður Þórarinsson, Sigurður Jónsson, and Snævarr Guðmundsson. The photos were developed by RAX and Golli photography studios.
Þingvellir liggja í sigdal á Mið-Atlantshafshryggnum. Þar hefur land sigið um nokkra metra síðan Alþingi var þar stofnað 930 og vatn gengið inn á vellina. Almannagjá myndast við jaðar sigdalsins og hallast yfirborð hraunsins við austurbarm gjárinnar eins og hún hafi snarast sem reyndar hefur gerst. Flosagjá og fleiri slíkar myndast við gliðnun á landinu í sigdalnum.
Sprungur eftir jarðskjálfta á sumarsólstöðum árið 2000.
Rjúpnabrekkujökull fellur norður úr Bárðarbungu, sem er íhvolf en ekki bungulaga. Hún geymir mikla öskju sem uppgötvaðist á gervitunglamyndum 1973. Þar er 850 m þykkur jökulís.
Askja í Dyngjufjöllum myndaðist í eldgosi um páskana 1875 og fylltist á næsta áratug af vatni sem er það dýpsta á landinu 220 m. Eldgosahrina gekk þar á 3. áratug 20. aldar. Síðast gaus þar 1961.
Herðubreið myndaðist í einu dyngjugosi undir jökli. Ef land hefði þá verið jökullaust hefði fjallið líkst Skjaldbreiði. Herðubreiðarlindir í forgrunni.
Horft suður eftir Vatnaöldum sem eru sprengigígaröð. Hún myndaðist í gosi 871, sem er stundum kennt við landnám. Þá myndaðist einnig Hrafntinnuhraun vestan við Landmannalaugar.
Lúdent og Lúdentarborgir.
Sprungugos í Gjástykki í október 1980.
Hraunreipi að myndast í Gjástykki í júlí 1980.
Hraunelfur í Gjástykki í júlí 1980.
Eitt minnsta hraunið, sem kom upp í Kröflueldum.
Laugahraun í Landmannalaugum er úr rýólíti úr gosi í Brennisteinsöldu frá 1477. Þá gaus jafnframt í Veiðivötnum.