2. Innihald Súkkulaðikrem: 1 dl rjómi 2 msk. síróp 100 g Síríus Konsum, saxað 50 g hrein jógúrt 250 g flórsykur 50 g Cadbury’s Dream hvítt súkkulaði Múffur: 100 g Síríus Konsum, saxað 1 msk. rjómi 2 msk. koníak 1 msk. flórsykur 150 g smjör 175 g dökkur muscovado-sykur 125 g hveiti 50 g kakó 1½ tsk. lyftiduft 3 egg
3. Aðferð - Súkkulaðikrem Byrjið á því að búa til súkkulaðikremið. Hitið rjóma og síróp saman að suðu en látið ekki sjóða. Brjótið Síríus Konsum-súkkulaðið í bita og setjið í skál. Hellið rjómablöndunni yfir og hrærið þar til súkkulaðið hefur bráðnað. Blandið jógúrtinu saman við ásamt flórsykrinum. Hrærið vel saman og látið bíða í kæli í 2 klukkustundir.
4. Aðferð - Súkkulaðikrem Hrærið upp í kreminu eftir að það er tekið út úr kælinum. Setjið eina matskeið af kreminu ofan á hverja múffu eftir að þær hafa kólnað. Skrælið þunnar ræmur af hvítu súkkulaði með grænmetisflysjara og dreifið yfir til skrauts.
5. Aðferð - Múffur Hitið ofninn í 180°C og raðið 12 pappírsmúffuformum í múffumót (annað hvort álmót eða silíkonmót). Bræðið súkkulaðið yfir vatnsbaði. Hrærið rjóma, koníak og flórsykur saman við þegar súkkulaðið er bráðið og kælið í um 15 mínútur. Hrærið smjör, muscovado-sykur, hveiti, kakó, lyftiduft og egg saman í annarri skál þar til blandan er orðin létt og samfelld.
6. Aðferð - Múffur Setjið helminginn af deiginu í múffuformin og setjið svo eina skeið af súkkulaðiblöndunni ofan á. Setjið afganginn af deiginu ofan á og bakið múffurnar í 15-18 mínútur. Takið múffurnar út úr ofninum og leyfð þeim að kólna á bökunargrind. Verði ykkur að góðu!