Beginners Guide to TikTok for Search - Rachel Pearson - We are Tilt __ Bright...
Marensbaka með dökku súkkulaði
1. Marensbaka með dökku súkkulaði Mikið súkkulaðibragð, stökkur botn og mjúkur marens, betra getur það ekki verið.
2. Innihald Uppskriftin er handa 8 manns. 200 g heilhveitikex, t.d. digestive eða grahams 1 msk. Cadbury’s kakó 50 g smjör, bráðið Súkkulaðifylling: 400 g Síríus Konsum 70% súkkulaði 2½ dl rjómi 3 eggjahvítur 180 g sykur
3. Aðferð - botn Setjið kexkökur, kakó og smjör í matvinnsluvél og vinnið vel saman þar til úr verður fíngerð mylsna. Þrýstið mylsnunni á botninn á vel smurðu smelluformi eða pæformi (um 20 cm í þvermál), setjið formið í ísskáp og kælið í 15-20 mínútur.
4. Aðferð - súkkulaðifylling Setjið súkkulaði og rjóma í pott og hitið við hægan hita þar til súkkulaðið hefur bráðnað. Hellið blöndunni yfir kexbotninn og kælið áfram í 30 mínútur. Hitið ofninn í 200°C. Stífþeytið eggjahvíturnar í skál og bætið sykrinum smátt og smátt út í. Þeytið þar til blandan er orðin þykk, glansandi og kremkennd. Setjið marensinn ofan á bökuna með sleikju og bakið í 15 mínútur, eða þar til marensinn hefur stífnað. Kælið bökuna áður en hún er borin fram með ferskum berjum. Verði ykkur að góðu!