Beginners Guide to TikTok for Search - Rachel Pearson - We are Tilt __ Bright...
Brownies með karamellukeim
1. Brownies með karamellukeim Hnausþykkar og þéttar í sér með afgerandi dökku súkkulaðibragði og ljúfum karamellukeim.
2. Innihald Uppskriftin gefur 20 stk. 280 g Síríus Konsum 70% súkkulaði 3 egg 2 tsk. vanilludropar 280 g púðursykur 80 g hveiti 1½ tsk. lyftiduft ¼ tsk. salt 200 g smjör, bráðið 200 g pekanhnetur
3. Aðferð Hitið ofninn í 170°C. Saxið allt súkkulaðið og bræðið helminginn af því yfir vatnsbaði. Þeytið egg, vanilludropa og púðursykur saman þar til blandan verður létt og ljós. Sigtið hveiti, lyftiduft og salt og blandið varlega saman við. Blandið bræddu súkkulaði og smjöri saman við deigið og hrærið varlega saman þar til það er slétt og samfellt. Blandið að lokum söxuðusúkkulaðinu ásamt hnetunum varlega saman við.
4. Aðferð Smyrjið 20 cm x 30 cm ferkantað kökuform vel og klæðið það að innan með bökunarpappír. Hellið deiginu í formið og bakið í 20-22 mínútur. Leyfið kökunni að kólna dálítið í forminu áður en hún er skorin í bita. Berið bitana fram volga með vanilluís eða þeyttum rjóma og berjum. Verði ykkur að góðu!