Beginners Guide to TikTok for Search - Rachel Pearson - We are Tilt __ Bright...
Hópverkefni í sálfræði
1.
2. Upphafsmaður
John B.Watson (1879-1958) var Amerískur
sálfræðingur sem gjarnan er titlaður faðir
atferlistefnunnar.
3. Atferlissálfræði
Atferlissálfræði leggur áherslu á nám, einkum
og sér í lagi reynslu einstaklings af umhverfi
sinu: samspili hegðunar og umhverfis, hvernig
afleiðing hegðunar mótar framtíðarhegðun.
4. Lykilhugtök
Virk skilyrðing: skilyrðing þar sem atferli
lífveru er mótað af breytingum á umhverfi
sem verða í kjölfar atferlisins.
Viðbragsskilyrðing: hegðun er afleiðing áretis
úr umhverfinu.
5. Viðbragðsskilyrðing
Óskilyrt áreiti (ÓÁ) er áreiti sem vekur áskapaða
svörun, oft ósjálfrátt viðbragð, áður en skilyrðing á
sér stað (hávaði).
Óskilyrt svörum (ÓS) er svörun við óskilyrta áreitinu,
notuð sem grunnlína til að meta styrk skilyrtrar
svörunar við áður hlutlausu áreiti ( hræðsla við
hávaða).
Skilyrt áreiti (SÁ) er áður hlutlaus áreiti (þ.eþ vekur
ekki skilyrtu svörunina sem vekur skilyrta svörun eftir
að hafa verið parað við óskilyrta áreitið (rotta).
Skilyrt viðbragð (SV) er lærð eða áunnin svörun svið
áreiti sem upphaflega vakti ekki þessa svörun
(Hræðsla við rottur).
6. Rannsókn
Fyrsta tilraunin til að nota skilyrðingar á fólk
var gerð árið 1920 af John B.Watson.
Þessi tilraun er sígild í sögu sálfræðinnar og er
gjarnan vitnað í hana sem söguna af Albert
litla.
Watson setti sér það markmið að kenna barni
að hræðast eitthvað sem það hafði ekki verið
hrætt við áður og sanna þar með að
tilfinningar væru lærðar eins og allt annað.
(Hann ætlaði sér að tengja óttaviðbragð við
hlutlaust áreiti).
7. Niðurstaða rannsóknar
á Albert litla
,,Hér er um að ræða hræðslu sem er áunnin en
ekki meðfædd... Vér höfum komið inn hjá
honum hræðslu við kanínuna. Nú grætur hann
jafnskjótt og hann sér hana og reynir að skríða
á brott.‘‘
(John B.Watson og Rosalie RaynerWatson, 1944. Fyrstu árin:
Handbók um barnauppeldi og sálræna meðferð ungbarna. Dr. Símon
Jóhann ‚Agústsson þýddi.)
8. Gagnrýni
AtferlisfræðiWatsons hafði gífurleg áhrif á
sálfræðina, einkum á þær aðferðir sem beitt
er í sálfræðilegum rannsóknum. Athyglisvert
er að sumir teljaWatson einn mikilvægasta
sálfræðing síðustu aldar og stilla honum upp
við hlið Darwins og Freuds, en aðrir telja hann
skömm fyrir greinina og segja hann hafa
orsakað fimmtíu ára villuráfandi vinnubrögð
sem byggja á röngum forsendum.