1. BÖRN FLÓTTAFÓLKS
OG HÆLISLEITENDA Í REYKJAVÍK
Fríða Bjarney Jónsdóttir
Verkefnastjóri fjölmenningar í
leikskólum.
frida.b.jonsdottir@reykjavik.is
2. FJÖLMENNINGARTEYMI SFS
Fjölmenningarteymi á skrifstofu SFS sinnir ráðgjöf og upplýsingagjöf varðandi
málefni barna af erlendum uppruna í skóla og frístundastarfi. Einnig vegna
flóttafólks og hælisleitenda.
Ráðgjöf og fræðsla er veitt á grundvelli stefnu sviðsins um fjölmenningarlegt skóla-
og frístundastarf „Heimurinn er hér“
Teymið skipa:
Dagbjört Ásbjörnsdóttir frístundastarf
Dröfn Rafnsdóttir grunnskólar
Fríða Bjarney Jónsdóttir leikskólar (formaður teymis)
3. MÓTTAKA FLÓTTAMANNA Á ÍSLANDI
Tæplega 300 hælisleitendur það sem af er ári – gríðarmikil aukning
Áætlað að um 70 þeirra fái stöðu flóttafólks
Börn eru 20% hælisleitenda (62% karlmenn, börn og konur eftir í heimalandi)
Samningur ríkisins við Reykjavík kveður á um þjónustu við 5 fjölskyldur
Ríkið búið að semja við þrjú sveitarfélög um móttöku kvótaflóttafólks
Linda Rós Alfreðsdóttir á málþingi félagsmálastjóra um flóttafólk 06.09.2015:
4.5. milljónir í Líbanon sem er tíu sinnum minna en Ísland
1.5 milljón flóttamanna – kynslóð barna að alast upp sem ekki hefur fengið menntun í allt að 4 ár
Kvótaflóttafólk eru einstaklingar sem eru fastir í nágrannaríkjum heimalands, það sem brennur á þeim
er að fá tækifæri fyrir börnin en það útskýrir mikilvægi þess að taka vel á móti og sinna vel börnum
„Tækifæri ólæsra kvenna eru fá en tækifærið felst helst í að styrkja þær sem foreldri. Verkefnið er þannig vel heppnað ef börnin
komast á legg“
4. FROM TEARS TO SMILE
From tears to smiles as they start their
new life in Germany: Crying Syrian father
pictured clutching his children after
landing on Kos arrives in Berlin with his
family
Read more: http://www.dailymail.co.uk/news/article-3226277/All-smiles-start-
new-life-Germany-Crying-Syrian-father-pictured-clutching-children-Kos-beach-fleeing-war-
arrives-Berlin-family.html#ixzz3sbRJb6xP
5. SKILGREININGAR
Kvótaflóttamaður
Er flóttamaður sem fengið hefur stöðu sem slíkur í öðru landi og fær boð frá stjórnvöldum um komu til
landsins.
Flóttamaður hefur þá þegar flúið upprunaríki sitt og fengið viðurkenningu á stöðu sinni hjá
Flóttamannastofnun Sameinuðu þjóðanna (UNHCR) í öðru ríki. Tilvísunin til kvótans vísar til þess að
yfirleitt er um að ræða fyrirfram ákveðinn fjölda flóttamanna sem boðið er reglulega til viðkomandi
ríkis.
Ekki verið samið við Reykjavíkurborg nú um að taka á móti kvótaflóttafólki eingöngu
hælisleitendum
síðastliðið vor komu inn tvö börn á leikskólaaldri og þrjú á grunnskólaaldri á grundvelli samnings um
kvótaflóttafólk
6. SKILGREININGAR
Umsækjandi um alþjóðlega vernd/hælisleitandi
Sá einstaklingur sem sækir um alþjóðlega vernd/hæli utan eigin ríkis og sækir formlega um að fá
stöðu sína viðurkennda sem flóttamaður.
Útlendingastofnun hefur gert samning við Reykjavíkurborg um að veita umsækjendum um alþjóðlega
vernd/hælisleitendum þjónustu á meðan mál þeirra eru í vinnslu hjá íslenskum stjórnvöldum.
Þegar málsmeðferð lýkur og Útlendingastofnun hefur tekið ákvörðun ber Útlendingastofnun að birta
umsækjanda/hælisleitanda ákvörðunina. Ef stjórnvöld fallast á réttmæti umsóknar um alþjóðlega
vernd/hæli þá fær einstaklingurinn viðurkenningu á stöðu sinni sem flóttamaður samkvæmt
flóttamannasamningi Sameinuðu þjóðanna.
Flóttamaður er umsækjandi um alþjóðlega vernd/hælisleitandi sem hefur fengið
viðurkennda stöðu flóttamanns skv. 44. gr. laga um útlendinga nr. 96/2002.
7. STEFNA V. MÓTTÖKU BARNA Í SKÓLA Í
REYKJAVÍK
Stefna Reykjavíkur varðandi móttöku barnanna í skóla borgarinnar og aðgengi að
sálfræðingum, sértæka aðstoð og túlkaþjónustu?
Hælisleitendur og kvótaflóttafólk er þjónustað á grundvelli samnings við ríkið, starfandi sálfræðingur á
VEL sem kannar stöðu þeirra barna sem fara inn í leik- og grunnskóla.
Stefna SFS um fjölmenningarlegt skólastarf nær yfir margt í móttöku, aðlögun og vinnu með börn af
erlendum uppruna. Hinsvegar hefur verið í gangi sértæk móttökuáætlun vegna barna kvótaflóttafólks
og nú er í vinnslu verklag vegna þjónustu við hælisleitendur.
Mikilvægt að hafa í huga:
Móttaka, aðlögun og nám kvótaflóttafólks ætti að vera með þeim hætti að verið er að byggja grunn
að framtíð
Móttaka, aðlögun og nám hælisleitenda er viðkvæm þjónusta sem þarf að koma til móts við börn
foreldra sem hafa yfir höfði sér að verða vísað úr landi eftir tiltekin tíma. Þetta er bæði flókið fyrir
börnin sjálf, foreldrana og kennara/starfsfólk í þeim skólum sem taka á móti börnunum
8. ÞJÓNUSTA VIÐ HÆLISLEITENDUR OG FLÓTTAFÓLK
Í SKÓLUM BORGARINNAR
Hvernig er staðið að innritun og nauðsynlegri þjónustu við kvótaflóttafólk og
hælisleitendur í leikskólum, grunnskólum og frístund?
Í þeim tilfellum sem tekið er á móti kvótaflóttafólki gerir ríkið samning við sveitarfélagið um þjónustu
við börn og fjölskyldur í eitt ár
hefur verið óskað eftir því að þetta verði samningur til lengri tíma
mikilvægt að skoða fjármagnið frá ríkinu í næstu samningum og hvort það nái yfir sértækan stuðning við börnin í skólum
Reynsla af móttöku kvótaflóttafólks í Reykvískum skólum og skólum utan Reykjavíkur s.s. Akranesi sem
byggt verður á þegar koma fleiri hópar
Ábyrgðin á verkefninu móttaka kvótaflóttafólks er hjá VEL. Þjónustumiðstöðvarnar Miðborg/Hlíðar og
Laugardalur/Háaleiti hafa hingað til séð um verkefnastjórn.
Tryggja þarf samræmt verklag á milli VEL og SFS gagnvart þeim þjónustumiðstöðvum sem stýra verkefninu
Tryggja þarf aðkomu fulltrúa frá leik, grunn og frí eftir því sem við á í hverju tilfelli
9. BÖRN HÆLISLEITENDA Í ÞJÓNUSTU SKÓLA
Í dag eru fjölskyldur hælisleitenda búsettar í Breiðholti, Laugardal/ Háaleiti,
Hlíðahverfi og Vesturbæ
Fimm grunnskólabörn í þremur skólum og fjögur leikskólabörn í tveimur skólum
Skv. viðauka við samning Reykjavíkur við Útlendingastofnun er tryggt að
„þjónustuaðili geti þjónustað barn með fullnægjandi hætti án þess að viðbótarkostnaður vegna þess
leggist á þjónustuaðilann. Í þeim tilgangi verður fjárhagslegum upplýsingum um þjónustu safnað
skipulega á gildistíma þessa viðauka“. Á fagskrifstofu SFS er verið að vinna verklag í samvinnu við VEL
til að tryggja yfirsýn yfir málefni fjölskyldna í hælismeðferð
Þjónustumiðstöð Miðborgar og Hlíða sinnir þjónustu við alla hælisleitendur í borginni en skólarnir hafa
bakland, ráðgjöf og stuðning einnig frá fjölmenningarteymi SFS
10. BÖRN HÆLISLEITENDA Í SKÓLUM/LEIKSKÓLUM
Þegar hælismeðferð lýkur fá einstaklingar stöðu flóttamanns eða eru sendir
á brott
Þegar einstaklingar fá stöðu flóttamanns fellur stuðningur ríkisins niður.
Þetta þarf að skoða og tryggja að ríkið greiði sama fjármagn til sveitarfélaga vegna
þjónustu við allt flóttafólk
Einnig þarf að skoða hvaða þjónustu þarf að veita börnum foreldra með stöðu flóttafólks
11. TIL UMHUGSUNAR
Þegar fyrsta reynsla borgarinnar af þjónustu við börn hælisleitenda hefur verið
skoðuð og þegar þeim börnum fjölgar þarf að skoða sérstaklega með hvaða hætti
eigi að þjónusta þau.
eiga þau að fara í þann skóla sem er næstur heimili (getur verið út um alla borg)?
á að semja við einn grunnskóla, einn leikskóla og eitt frístundaheimili um móttöku barna hælisleitenda,
þar sem hægt væri að sinna sértækri móttöku og aðlögun barnanna sem miðast við sérstöðu þeirra?
ætti að tryggja búsetuúrræði fyrir allar fjölskyldur á einum stað þar sem hægt væri að bjóða upp á
skóla og frístundarstarf á staðnum miðað við þarfir barnanna?
Koma þarf að stað samtali á milli ríkis og sveitarfélaga um skilgreiningu á því hvað
er „fullnægjandi“ þjónusta við börn hælisleitenda