Beginners Guide to TikTok for Search - Rachel Pearson - We are Tilt __ Bright...
Hör
1. Hör/ Lín
Margar tegundir eru til af hör en vinsælust er Linum ustitatissimum. Ræktunin fer aðalega fram þar
sem loftslagið er rakt og frekar svalt. Rússar framleiða mest af hör en Nýja-Sjáland, Írland, Pólland,
Belgía og fleiri lönd framleiða hana líka. Úr stönglinum á plöntunni eru unnar trefjar í þráð. Fyrst er
plantan feyskjuð þ.e. límefnin eru leyst upp í vatni, síðan er hörinn þurkaður og brákaður þá er átt við
að hörinn er brotinn í vélum. Eftir það er hann þystaður þá er viðurinn sleginn úr, síðan eru
basttrefjarnar kembdar og spunnar.
Hör hefur fallegan gljáa að vísu er hann mjög misjafn því það eru til margar tegundir af honum. Hann
er sterkur, teygist ekki, rafmagnast ekki, þolir hátt hitastig í þvotti og er mjög rakadrægur.
Hör er eftirsótt vefjarefni en hann er fremur dýr vegna flókins framleiðsluferils. Hægt er að nota hann
í allt mögulegt eins og t.d. í tíslufatnað, allskonar dúka og heimilisvörur.
Á Íslandi hefur verið prófað að rækta hör og það hefur gengi þokkalega. Vinnsluaðferðin sem notuð
er hér gefur af sér mjög góðan hör sem er algjörlega samkeppnisfær við erlendan hör.