2. Alls ekkert einsdæmi í sögunni.
Frumbyggjar Ameríku (1500-1900), Kongó
(1885-1908), Armenía (fyrri heimsstyrjöld),
Rúanda (1994), Srebrenica (1995), Darfur (2003-
?)
Mismunandi aðferðir: drepa alla, drepa alla
karlmenn, drepa öll börn…
3. Nürnberg-lögin 1935
Skilgreindu hverjir töldust gyðingar
Útilokuðu þá úr þjóðfélaginu með ýmsum hætti
(giftingar, kosningaréttur, störf…)
Skipulögð fjöldamorð þar sem Þjóðverjar lögðu
undir sig landsvæði í A-Evrópu
Gyðingahverfi reist í borgum
Útrýmingarbúðir
4. Hver og einn skrifar hjá sér sína eigin
hugmynd um það hversu mikið almennir
Þjóðverjar vissu. (Ekkert, minnst, flest, allt)
Berið svo saman tvö og tvö og ef þið eruð
ósammála, komist að sameiginlegri niðurstöðu.
Svo verður könnun, hvað heldur
nemendahópurinn.
5. Kirkjur útveguðu fæðingarvottorð til að sýna
hverjir væru af gyðingaættum.
Pósturinn bar út skipanir um brottflutninga.
Fjármálaráðuneytið gerði eigur gyðinga
upptækar.
Fyrirtæki ráku starfsmenn sem voru gyðingar
og hirtu hlutabréf af hluthöfum sem voru
gyðingar.
6. Háskólarnir neituðu gyðingum um inngöngu
og ráku kennara af gyðingaættum.
Samgöngufyrirtækin skipulögðu flutninga á
gyðingum í útrýmingarbúðir.
Lyfjafyrirtæki framleiddu lyf sem voru notuð
við tilraunir á gyðingum.
Byggingafyrirtæki tóku að sér að reisa
líkbrennslustöðvar.
7. IBM í Þýskalandi þróaði skráningarkerfi yfir
aftökur.
Eigur gyðinga voru gerðar upptækar við
komuna í búðirnar, sendar aftur til Þýskalands
í endurvinnslu.
Þannig fengu til dæmis tannlæknar,
hárkollugerðarmenn og gleraugnasalar ókeypis
birgðir.
8. Enginn þjóðfélagshópur, trúfélag, fyrirtæki,
félagasamtök… ENGINN tók afstöðu með
gyðingum.
9. Af því að Hitler var geðveikur?
Af því að Hitler var með kynsjúkdóm?
Af því að Hitler var misheppnaður listmálari?
10. Aríar og gyðingar eru ólíkir kynstofnar (svipað
og Schäfer og Chihuahua)
Það er atvinnuleysi, fátækt, kreppa…
Ekki nóg til handa öllum – losum okkur við þá
sem eiga síst skilið að komast af
Gyðingar hyggja á heimsyfirráð – við verðum
að koma í veg fyrir það
11. Fyrst var notast við vélbyssur – grafinn
skurður, fólkinu stillt upp í röð og skotið, svo
það féll í skurðinn. Svo var mokað yfir.
Þetta var ekki nógu skilvirkt.
Þá var fundinn upp gasklefinn.
12. Flestar í Póllandi – þar bjuggu flestir gyðingar
og þannig var hægt að fela hryllinginn fyrir
þýsku þjóðinni.
Tvenns konar búðir:
Útrýmingarbúðir, þar sem allir voru drepnir strax
Vinnubúðir, þar sem sumir voru notaðir í vinnu
13. Margir þýskir hermenn, sem störfuðu í
útrýmingarbúðunum, töpuðu geðheilsunni og
frömdu jafnvel sjálfsmorð.
Fangar voru notaðir til þess að róa fólkið á leið
inn í gasklefann, fylgja því inn, segja því frá
hvernig lífið í búðunum væri… og moka svo
líkunum í brennsluofnana á eftir.
Stundum rákust menn á ættingja eða maka…