3. Hvað er andspyrna?
• Í hverju einasta landi sem Þjóðverjar hernámu í stríðinu, urðu
til neðanjarðarhreyfingar sem reyndu að skemma fyrir þeim
• Njósnuðu um Þjóðverja og komu upplýsingum til bandamanna
• Hjálpuðu gyðingum og öðrum sem voru ofsóttir
• Hjálpuðu flugmönnum sem voru skotnir niður
• Skemmdu vegi, brýr og járnbrautarteina
• Drápu þýska hermenn
4. Pólska andspyrnan
• Pólski herinn gafst fljótlega upp fyrir þýska innrásarliðinu
• Armia Krajowa – heimavarnarliðið – barðist gegn Þjóðverjum
og Rússum allt stríðið
• Witold Pilecki lét flytja sig til Auschwitz og smyglaði þaðan
upplýsingum um voðaverk nasista
5. Júgóslavía
• Tvær fylkingar komu fram, sem báðar börðust gegn nasistum
en líka hvor við aðra
• Nasistar náðu aldrei almennilegri stjórn á Júgóslavíu
• Lýðveldið Úsitje var stofnað af uppreisnarmönnum í vestur-
Serbíu og hélt velli sem sjálfstætt þjóðríki í nokkra mánuði
• Josip Broz Tito, foringi annarar fylkingarinnar, varð seinna
einræðisherra í kommúnistaríkinu Júgóslavíu alveg fram til
1980
6.
7. Danmörk
• Danir gáfust strax upp fyrir þýska innrásarhernum og
stjórnvöld þar hvöttu Dani til samvinnu með nasistum
• 1943 stóð svo til að flytja alla danska gyðinga í
útrýmingarbúðir
• Þýskur sendiráðsstarfsmaður bjargaði þeim öllum og kom
þeim í öruggt skjól í Svíþjóð
8. Frægur flótti
• Fjórum föngum tókst að strjúka úr Auschwitz-fangabúðunum
sumarið 1942.
• Þeir klæddu sig í SS-einkennisbúninga og keyrðu út um hliðið á
bíl.
• Þeir náðust aldrei en foreldrar tveggja þeirra voru handteknir
og drepnir í Auschwitz.
9. BELGÍA
• 1631 fangi af gyðingaættum voru um borð í lest sem var á leið
til Auschwitz frá Mechelen í Belgíu.
• Þremur andspyrnumönnum tókst að stöðva lestina með því að
veifa rauðri lukt – plötuðu lestarstjórann sem hélt að hætta
væri á ferðum.
• 231 fangi slapp úr lestinni og af þeim voru 26 drepnir og 90
náðust. 115 sluppu lifandi, sá yngsti var aðeins 11 ára.
10. Noregur
• Þjóðverjar voru langt komnir með að búa til kjarnorkuvopn.
• Framleiðsla þungavatns – sem var nauðsynlegt í vopnin – fór
fram í bænum Rjukan í Noregi.
• Þegar verksmiðjan var sprengd í loft upp voru áætlanir
Þjóðverja um kjarnorkuvopn úr sögunni – það hefði getað farið
öðruvísi.
11. Mótaðgerðir nasista
• SS-sveitir nasista sáu um að berjast við andspyrnumenn.
• Menn voru handteknir, pyntaðir, sendir í fangabúðir og/eða
myrtir.
• Á tímabili störfuðu yfir 200.000 manns við það fyrir Þjóðverja
að reyna að vinna sigur á andspyrnuhreyfingum í Evrópu.
12. Hættan við andspyrnu
• Andspyrnuhópar voru misjafnlega grimmir í sínum aðgerðum
• Þjóðverjar hefndu oft miskunnarlaust fyrir verk
andspyrnumanna
• Stundum voru heilu bæjarfélögin þurrkuð út í hefndarskyni
• Sumir hópar fóru varlega af þessum ástæðum, en aðrir létu
það ekki hafa áhrif á sig og gerðu hiklaust árársir á Þjóðverja
• Í Frakklandi voru til dæmis tvær fylkingar: FTP og AS
• FTP gerðu fleiri árásir en AS voru varkárir, biðu eftir rétta
tækifærinu og þegar ráðist var inn í Frakkland 1944 gátu þeir
hindrað viðbrögð Þjóðverja með miklum skemmdarverkum
13. D-dagur
• Daginn áður en bandamenn réðust á land í N-Frakklandi var
flutt ljóð í breska útvarpinu.
• Andspyrnumenn voru að hlusta.
• Ljóðið var dulmálsskeyti og nú vissu þeir að næsta dag yrði
látið til skarar skríða.
• Þeir fóru því um allt, eyðilögðu vegi og brýr, járnbrautarteina
og vopnageymslur og gerðu Þjóðverjum mjög erfitt að verjast
innrásinni.
• http://www.youtube.com/watch?v=BZ-C6eZ0OFk