Beginners Guide to TikTok for Search - Rachel Pearson - We are Tilt __ Bright...
Um víða veröld evropa
1. UM VÍÐA VERÖLD
Evrópa - tíminn í dag
Eftir tímann í dag ætlum við að:
• að þekkja til landslags og náttúrufars í Evrópu
• að þekkja helstu einkenni Evrópu
• að þekkja helstu atvinnuhætti Evrópu
• að þekkja til upphafs iðnvæðingar í Evrópu
(iðnbyltingarinnar)
• Þekkja til samstarfs Evrópuríkja (ESB og EES)
3. UMVÍÐAVERÖLD
Evrópa - Landslag
Evrópa er næst minnsta
heimsálfan
Hálend í norðri og suðri
Alparnir eru
fellingafjöll, mynduð við
flekamót
Álfan er vogskorin
5. UMVÍÐAVERÖLD
Evrópa - Loftslag
Evrópa er að mestu í tempraða
beltinu nyrðra;
þar viðrar vel til landbúnaðar
Nyrst er heimskautaloftslag þar sem lítið er ræktað
Syðst er Miðjarðarhafsloftslag
Stærstur hluti álfunnar hefur verið tekinn til ræktunar
Vestast, við ströndina, er úthafsloftslag en þegar austar
dregur tekur meginlandsloftslag við
7. UMVÍÐAVERÖLD
Evrópa - Náttúruauðlindir
Evrópa er rík af náttúruauðlindum
Landbúnaður er stundaður um alla
álfuna, kvikfjárrækt nyrst, akuryrkja í
austurhlutanum og grænmetis og
ávaxtarækt syðst.
Fiskveiðar eru mikið stundaðar.
Kol og járn finnast í
Englandi, Frakklandi, Þýskalandi og Póllandi. Kol
og járn voru megin hráefni iðnbyltingarinnar.
Olía og gas finnst í Rússlandi og í Norðursjónum.
8. UMVÍÐAVERÖLD
Evrópa - Iðnbyltingin
Iðnbyltingin hófst á Englandi í lok 18. aldar
Þá fóru menn að nýta sér vélarafl í stað handafls
og miklar framfarir urðu í álfunni
Með iðnbyltingunni náðu Evrópubúar forskoti á
aðrar álfur
Evrópa býr enn að þessu forskoti sem fékkst með
iðnbyltingunni
9. UMVÍÐAVERÖLD
Evrópa - Löndin
Evrópa er mjög þéttbýl
Samgöngur eru háþróaðar
Landbúnaður er mjög
tæknivæddur
Iðnaður og þjónusta eru helstu
atvinnuvegirnir