Gönguleiðin hringinn í kringum Mont Blanc er ein af frægustu gönguleiðum Alpanna. Gengið er í 1.500 – 2.600 m hæð, um ítalska, svissneska og franska hluta fjallsins, yfir sléttur, brattar fjallshlíðar og fjölmörg skörð. Göngutími upp undir 8 tíma á dag. Ferðin farin á besta tíma að sumrinu, með tilliti til snjóalaga og opnunar á kláfum