SlideShare a Scribd company logo
1 of 17
Download to read offline
Ítalía er land í Suður-Evrópu. Landið liggur aðallega á Appenínaskaga sem
gengur til suðausturs út í Miðjarðarhafið og minnir í lögun dálítið á stígvél. Að
norðan nær landið allt upp í Alpafjöll.

Lönd sem liggja að Ítalíu eru Frakkland, Sviss, Austurríki og Slóvenía. Einnig
eru tvö sjálfstæð ríki umlukin af Ítalíu; San Marínó (sem er nálægt austur-
ströndinni og Rímíní) og Vatíkanið eða Páfagarður, sem er hluti af Róm.

Rómaborg er höfuðborgin og stærsta borgin. Hún er ein af söguríkustu og
merkustu borgum Evrópu og er stundum kölluð „borgin eilífa“. Aðrar stórar
borgir eru t.d. Mílanó, Flórens, Genúa, Tórínó, Feneyjar, Veróna, Bologna,
Rímíní, Napólí og Palermó. Gjaldmiðillinn er evra síðan 1999, en var áður líra.
Milan Cathedral
Róm
Róm
Róm er í 11-139 m hæð yfir sjó. Íbúafjöldinn er u.þ.b. 3 milljónir. Borgin eilífa er höfuðborg landsins,
héraðsins Róm og sýslunnar Latium ásamt því að vera stærsta borg landsins. Vatíkanið í Róm er setur
páfa og hirðar hans. Róm er á svipaðri breiddargráðu og Chicago og Istambúl, 20 km frá Tyrreníska
hafinu í hæðóttu Campagna di Roma og við ána Tiber, hina þriðju stærstu á Ítalíu. Þvermál Rómar er
u.þ.b. 9 km en heildarflatarmál 1500 km².
Róm tók við hlutverki höfuðborgar Ítalíu af Flórens þegar hersveitir konungsríkisins hertóku hana 20.
september árið 1870. Áður hafði hún verið
höfuðstaður Páfaríkisins sem náði yfir miðhluta
Ítalíuskagans frá tímum Karlamagnúsar. Við her-
tökuna lýsti páfi sig fanga í Vatíkaninu og
neitaði að viðurkenna ítalska ríkið, hótaði jafn-
vel bannfæringu þeim sem tækju þátt í kosn-
ingum á Ítalíu. Málið var óleyst þar til Lateran-
samningarnir voru gerðir milli páfa og ríkis-
stjórnarinnar (undir stjórn fasista) árið 1929.
Undir stjórn Mússólínís var ráðist í ýmsar
róttækar og mjög umdeildar breytingar á borg-
inni, gömul hverfi rifin til að skapa pláss fyrir
breiðgötur og torg sem hæfðu nútíma höfuðborg, en borgin hafði vaxið mjög hratt eftir að hún var gerð
að höfuðborg.
Í stríðinu varð borgin fyrir miklum loftárásum, en var þó ekki eyðilögð. Hún féll í hendur bandamanna 6.
júní 1944 eftir stutt tímabil þýskrar hersetu (stjórn fasista féll 1943).
Hringleikahúsið í Róm
Kólosseum er hringleikahús í Róm, hið stærsta
sinnar tegundar í fornöld. Það var fullgert árið 80
e.Kr. og er 188 metra langt og 156 metra breytt.
Kólosseum var upprunalega 50 metra hátt á
fjórum hæðum og rúmaði 40.- 50.000 manns í
sæti. Í hringleikahúsinu voru haldnir hefðbundnir
bardagar með skylmingarþrælum, en margs konar
aðrir viðburður einni, s.s. dýraveiðar, aftökur, leik-
rit og endurleiknir frægir bardagar. Kólosseum var
í notkun í nærri 500 ár, síðasti skráði viðburðurinn
var haldinn á 6. öld, löngu eftir fall Rómar árið
476.

Þó að hringleikahúsið sé nú mjög illa farið eftir
jarðskjálfta og steinaræningja hefur Kólosseum
lengi verið séð sem tákn keisaradæmis Rómar og
eitt af bestu varðveittu dæmum um Rómverska
byggingalist.




Vatíkanið
Vatíkanið er ríki páfans, Páfagarður, og er sjálfstætt ríki innan Rómar og miðstöð kaþólsku kirkjunnar.
Vatíkanið var stofnað 1929, en áður hafði verið til svo kallað Kirkjuríki sem laut forræði rómversk-
kaþólsku kirkjunnar, einnig með höfuðstöðvar í Róm og aðsetur Páfa. Mikil leynd hvílir yfir eignum, tekju-
stofnum og útgjöldum Vatíkansins, en það hefur eigin utanríkisþjónustu, réttarkerfi, gjaldmiðil, póst- og
símaþjónustu, járnbrautarstöð, dagblað og útvarpsstöð. Vatíkanið afmarkast af múrum á þrjá vegu, en
Péturstorgi með Vatíkanhöllinni og Péturskirkjunni á fjórða veginn. Þar að auki tilheyra Vatíkaninu 13
Péturskirkjan
Péturskirkjan er höfuðkirkja rómversk-
kaþólsku kirkjunnar og er nefnd eftir Pétri
postula sem var lærisveinn Krists. Hófst bygg-
ing hennar fyrir um 5 öldum þegar hafist var
handa að endurbyggja eldri Péturskirkju frá 4.
öld. Grunnskipulag Péturskirkjunnar er í stíl
við latneskan kross með þremur göngum milli
kirkjubekkja og mikilli hvelfingu beint uppi yfir
háaltarinu, en þar undir er talin vera gröf
Péturs postula.

Péturskirkjan hefur um aldir verið stærst og
mikilfenglegust kirkna kristninnar. Hún er
með stærstu kirkjum í heimi. Michelangelo
hannaði hvolfþak kirkjunnar og á mestan
heiður af endanlegu útliti Péturskirkjunnar.




                                                    Forum Romanum
                                                    Forum Romanum var aðaltorgið í Róm til forna, byggt um 575
                                                    f.Kr. og sá staður sem Róm þróaðist út frá. Það liggur í dalverpi
                                                    milli Kapítólhæðar og Palatínhæðar. Þar hófst verslun og
                                                    stjórnun réttarfars fór fram. Miðpunktur samfélagsins var í
                                                    Forum Romanum.

                                                    Skipulagður uppgröftur fornleifa hefur farið fram á Forum
Feneyjar eru reistar á 118 hólmum og helsti ferðamáti íbúa
innan borgarinnar hefur frá upphafi verið siglingar. Margar fal-
legar brýr tengja hólmana saman og því er þægilegt að fara
ferða sinna fótgangandi en umfram allt skemmtilegt að sigla
milli staða á gondóla, að degi eða kvöldi, jafnvel undir angur-
værum söng ræðarans. Gondólarnir eru smíðaðir samkvæmt
gamalli hefð, breiðari í annan endann til þæginda fyrir ræðarann
sem aðeins notast við eina ár


                         .
Feneyska Rivieran er einn vinsælasti sumardvalarstaður Ítalíu og strandbærinn
Lido di Jesolo býr yfir öllu því besta sem prýtt getur vel heppnað sumarleyfi. Stór-
kostleg strandlengja, fjörugt næturlíf, góðir veitingastaðir og fjölbreytt skemmtun
fyrir fjölskylduna.
     Lido di Jesolo er nýtískulegur bær sem stendur við 14 km langa strandlengju
með gullnum fíngerðum sandi og þar er hægt að stunda fjölbreyttar vatnaíþróttir.
Við strandgötu bæjarins eru ótalmargar verslanir með ítalskan tískuvarning opnar
langt fram á kvöld. Þar eru einnig lítil torg þar sem heimamenn setja upp markaði
og götulistamenn skemmta.Á föstudögum er markaður á Kennedytorgi, Piazza
Kennedy, með fjölmörgum básum þar sem fjölbreyttur varningur er á boðstólum:
matvara, fatnaður, blóm, o.m.fl. Fjöldi góðra veitingastaða er við strandgötuna og
eftir góða ítalska máltíð með rómuðum vínum héraðsins er tilvalið að bregða sér á
dansstað, en þeir eru fjölmargir í nágrenninu og hafa opið fram undir morgun.
Sagt er að Lido di Jesolo sé staður sem aldrei sofi.
    Stórskemmtilegur vatnsbrautagarður, Aqualandia, er skammt frá ströndinni,
með ótal tegundum af rennibrautum og sundlaugum; uppáhaldsstaður barna á
öllum aldri. Nálægðin við Feneyjar eykur enn á fjölbreytnina, enda samgöngur
þægilegar. Almenningsvagnar, leigubílar og farartækin sem einkenna Feneyjar,
„watertaxi“, bátar sem flytja fólki milli staða. Dagsferðir á slóðir Rómeó og Júlíu í
Verónu eða að hinu undurfagra Gardavatni gera fríið enn eftirminnilegra. Í Jesolo
er auðvelt að gleyma sér í skemmtilegu og líflegu andrúmslofti staðarins
Madonna di Campiglio er einn af þekktustu
skíðabæjum Ítalu. Þangað flykkist skíðafólk á
öllum aldri hvaðanæva að úr heiminum á
hverju ári. Bærinn stendur í dalnum Val
Rendena í vesturhluta Trentino héraðsins
rétt við rætur vestur-Dólómítanna.

Þetta fallega fjallaþorp liggur í rúmlega 1.500
metra hæð yfir sjávarmáli og eru bæjarbúar
um sjö hundruð talsins. Stutt er í skíðalyftur
og kláfa úr miðbænum og liggja hæstu
brekkurnar upp í allt að 2.600 metra hæð.
Skíðabrekkurnar eru eins fjölbreyttar og þær
eru margar og henta jafnt byrjendum sem og
lengra komnum.

Fjallasvæðið skiptist í fjögur mismunandi
skíðasvæði sem hægt er að skíða á milli og
getur fólk valið um svartar, rauðar eða bláar
brekkur, allt eftir getu hvers og eins. Svæðin
Pradalago og Grosté eru auðveldust á meðan
svæðin Spinale og 5 Laghi fela í sér meiri á-
skoranir og ögranir.
Skíðasvæðið er gríðarstórt, samtals um 150 km af skíðabrautum. Lengsta einstaka
skíðabrautin telur heila fimm kílómetra. Lyftur eru 57 talsins og flestar eru þær
opnar frá kl. 8.30 til 16.30 alla daga. Þær geta flutt allt að 30 þúsund gesti á
hverjum klukkutíma upp og niður fjöllin.

Boðið er upp á skíðakennslu á svæðinu fyrir alla aldurshópa. Með nýlegri tengingu
er hægt að skíða frá Madonna yfir í tvo nærliggjandi smærri skíðabæi, Folgarida og
Marilleva. Fyrrihluta dags og fram yfir miðjan dag er lífið í skíðabrekkunum en eftir
að miðdegishvíldinni eða „síestunni“ lýkur og fram á kvöld færist líf í bæinn sjálfan.
Miðbærinn er afar heillandi og gefa fjöldi skemmtilegra kaffihúsa og fjölbreyttra
verslana honum skemmtilegan blæ.
ð með
                           in dregi
                 r, m æli e
                u
        bæ kling
       r              Gargand
F rábæ                       i snilld !
         .
 ho num
        Bæklingur sem er nauðsýn í alla bíla !
        nnannaunaunauðsýn                 líu með
                                 alla Íta
                       r ðast um
              ir að fe
     Ég á eft
                   dbók !      Gagnrýnendur
      Þe ssa han
http://romarvefurinn.is/italia_feneyjar.html [sótt 2011]

http://is.wikipedia.org/wiki/%C3%8Dtal%C3%ADa [sótt 2011]

http://is.wikibooks.org/wiki/R%C3%B3m [sótt 2011]

http://is.wikipedia.org/wiki/R%C3%B3m [sótt 2011]

http://www.urvalutsyn.is/skidi/madonna/ [sótt 2011]

http://www.icelandonline.is/ferdaheimurisl/italia_rom.htm [sótt 2011]

More Related Content

Viewers also liked

Magic rabbit
Magic rabbitMagic rabbit
Magic rabbit
migaagim
 
Aurkezpena 10-11 aurrematrikula1
Aurkezpena 10-11 aurrematrikula1Aurkezpena 10-11 aurrematrikula1
Aurkezpena 10-11 aurrematrikula1
ernio
 
Shm spring worksheet
Shm spring worksheetShm spring worksheet
Shm spring worksheet
dwsutherland
 
L'aigua a la natura
L'aigua a la naturaL'aigua a la natura
L'aigua a la natura
bl
 
Dites i endevinalles
Dites i endevinallesDites i endevinalles
Dites i endevinalles
bl
 
2011 cleveland sio
2011 cleveland sio2011 cleveland sio
2011 cleveland sio
Josh Mailman
 
Birth Control Methods
Birth Control Methods Birth Control Methods
Birth Control Methods
Sorayalu
 

Viewers also liked (20)

Tira comica
Tira comicaTira comica
Tira comica
 
4ºb
4ºb4ºb
4ºb
 
Magic rabbit
Magic rabbitMagic rabbit
Magic rabbit
 
Seychelles2
Seychelles2Seychelles2
Seychelles2
 
Callejeros Serranía de Ronda
Callejeros Serranía de RondaCallejeros Serranía de Ronda
Callejeros Serranía de Ronda
 
Aurkezpena 10-11 aurrematrikula1
Aurkezpena 10-11 aurrematrikula1Aurkezpena 10-11 aurrematrikula1
Aurkezpena 10-11 aurrematrikula1
 
Shm spring worksheet
Shm spring worksheetShm spring worksheet
Shm spring worksheet
 
L'aigua a la natura
L'aigua a la naturaL'aigua a la natura
L'aigua a la natura
 
Estel oliba
Estel olibaEstel oliba
Estel oliba
 
Lehenengo sektorea
Lehenengo sektoreaLehenengo sektorea
Lehenengo sektorea
 
Noticias Tel ene2011
Noticias Tel ene2011Noticias Tel ene2011
Noticias Tel ene2011
 
La poesia de miquel martí i pol, p pt amparo
La poesia de miquel martí i pol, p pt amparoLa poesia de miquel martí i pol, p pt amparo
La poesia de miquel martí i pol, p pt amparo
 
Spock Framework
Spock FrameworkSpock Framework
Spock Framework
 
Dites i endevinalles
Dites i endevinallesDites i endevinalles
Dites i endevinalles
 
1844final 100811113357 Phpapp01
1844final 100811113357 Phpapp011844final 100811113357 Phpapp01
1844final 100811113357 Phpapp01
 
Inregotrading
InregotradingInregotrading
Inregotrading
 
1844final 100811113357 Phpapp01
1844final 100811113357 Phpapp011844final 100811113357 Phpapp01
1844final 100811113357 Phpapp01
 
2011 cleveland sio
2011 cleveland sio2011 cleveland sio
2011 cleveland sio
 
Insights from the Machiavellian Librarian: Getting to Prince from Plebe
Insights from the Machiavellian Librarian: Getting to Prince from PlebeInsights from the Machiavellian Librarian: Getting to Prince from Plebe
Insights from the Machiavellian Librarian: Getting to Prince from Plebe
 
Birth Control Methods
Birth Control Methods Birth Control Methods
Birth Control Methods
 

Similar to Italiubaeklingur samsett

Similar to Italiubaeklingur samsett (6)

Frakkland
FrakklandFrakkland
Frakkland
 
Austur Evrópa
 Austur Evrópa Austur Evrópa
Austur Evrópa
 
Austur Evrópa
 Austur Evrópa  Austur Evrópa
Austur Evrópa
 
Austur Evrópa
Austur EvrópaAustur Evrópa
Austur Evrópa
 
Karen
KarenKaren
Karen
 
Austur Evrópa
 Austur Evrópa Austur Evrópa
Austur Evrópa
 

Italiubaeklingur samsett

  • 1.
  • 2. Ítalía er land í Suður-Evrópu. Landið liggur aðallega á Appenínaskaga sem gengur til suðausturs út í Miðjarðarhafið og minnir í lögun dálítið á stígvél. Að norðan nær landið allt upp í Alpafjöll. Lönd sem liggja að Ítalíu eru Frakkland, Sviss, Austurríki og Slóvenía. Einnig eru tvö sjálfstæð ríki umlukin af Ítalíu; San Marínó (sem er nálægt austur- ströndinni og Rímíní) og Vatíkanið eða Páfagarður, sem er hluti af Róm. Rómaborg er höfuðborgin og stærsta borgin. Hún er ein af söguríkustu og merkustu borgum Evrópu og er stundum kölluð „borgin eilífa“. Aðrar stórar borgir eru t.d. Mílanó, Flórens, Genúa, Tórínó, Feneyjar, Veróna, Bologna, Rímíní, Napólí og Palermó. Gjaldmiðillinn er evra síðan 1999, en var áður líra.
  • 5. Róm Róm er í 11-139 m hæð yfir sjó. Íbúafjöldinn er u.þ.b. 3 milljónir. Borgin eilífa er höfuðborg landsins, héraðsins Róm og sýslunnar Latium ásamt því að vera stærsta borg landsins. Vatíkanið í Róm er setur páfa og hirðar hans. Róm er á svipaðri breiddargráðu og Chicago og Istambúl, 20 km frá Tyrreníska hafinu í hæðóttu Campagna di Roma og við ána Tiber, hina þriðju stærstu á Ítalíu. Þvermál Rómar er u.þ.b. 9 km en heildarflatarmál 1500 km². Róm tók við hlutverki höfuðborgar Ítalíu af Flórens þegar hersveitir konungsríkisins hertóku hana 20. september árið 1870. Áður hafði hún verið höfuðstaður Páfaríkisins sem náði yfir miðhluta Ítalíuskagans frá tímum Karlamagnúsar. Við her- tökuna lýsti páfi sig fanga í Vatíkaninu og neitaði að viðurkenna ítalska ríkið, hótaði jafn- vel bannfæringu þeim sem tækju þátt í kosn- ingum á Ítalíu. Málið var óleyst þar til Lateran- samningarnir voru gerðir milli páfa og ríkis- stjórnarinnar (undir stjórn fasista) árið 1929. Undir stjórn Mússólínís var ráðist í ýmsar róttækar og mjög umdeildar breytingar á borg- inni, gömul hverfi rifin til að skapa pláss fyrir breiðgötur og torg sem hæfðu nútíma höfuðborg, en borgin hafði vaxið mjög hratt eftir að hún var gerð að höfuðborg. Í stríðinu varð borgin fyrir miklum loftárásum, en var þó ekki eyðilögð. Hún féll í hendur bandamanna 6. júní 1944 eftir stutt tímabil þýskrar hersetu (stjórn fasista féll 1943).
  • 6. Hringleikahúsið í Róm Kólosseum er hringleikahús í Róm, hið stærsta sinnar tegundar í fornöld. Það var fullgert árið 80 e.Kr. og er 188 metra langt og 156 metra breytt. Kólosseum var upprunalega 50 metra hátt á fjórum hæðum og rúmaði 40.- 50.000 manns í sæti. Í hringleikahúsinu voru haldnir hefðbundnir bardagar með skylmingarþrælum, en margs konar aðrir viðburður einni, s.s. dýraveiðar, aftökur, leik- rit og endurleiknir frægir bardagar. Kólosseum var í notkun í nærri 500 ár, síðasti skráði viðburðurinn var haldinn á 6. öld, löngu eftir fall Rómar árið 476. Þó að hringleikahúsið sé nú mjög illa farið eftir jarðskjálfta og steinaræningja hefur Kólosseum lengi verið séð sem tákn keisaradæmis Rómar og eitt af bestu varðveittu dæmum um Rómverska byggingalist. Vatíkanið Vatíkanið er ríki páfans, Páfagarður, og er sjálfstætt ríki innan Rómar og miðstöð kaþólsku kirkjunnar. Vatíkanið var stofnað 1929, en áður hafði verið til svo kallað Kirkjuríki sem laut forræði rómversk- kaþólsku kirkjunnar, einnig með höfuðstöðvar í Róm og aðsetur Páfa. Mikil leynd hvílir yfir eignum, tekju- stofnum og útgjöldum Vatíkansins, en það hefur eigin utanríkisþjónustu, réttarkerfi, gjaldmiðil, póst- og símaþjónustu, járnbrautarstöð, dagblað og útvarpsstöð. Vatíkanið afmarkast af múrum á þrjá vegu, en Péturstorgi með Vatíkanhöllinni og Péturskirkjunni á fjórða veginn. Þar að auki tilheyra Vatíkaninu 13
  • 7. Péturskirkjan Péturskirkjan er höfuðkirkja rómversk- kaþólsku kirkjunnar og er nefnd eftir Pétri postula sem var lærisveinn Krists. Hófst bygg- ing hennar fyrir um 5 öldum þegar hafist var handa að endurbyggja eldri Péturskirkju frá 4. öld. Grunnskipulag Péturskirkjunnar er í stíl við latneskan kross með þremur göngum milli kirkjubekkja og mikilli hvelfingu beint uppi yfir háaltarinu, en þar undir er talin vera gröf Péturs postula. Péturskirkjan hefur um aldir verið stærst og mikilfenglegust kirkna kristninnar. Hún er með stærstu kirkjum í heimi. Michelangelo hannaði hvolfþak kirkjunnar og á mestan heiður af endanlegu útliti Péturskirkjunnar. Forum Romanum Forum Romanum var aðaltorgið í Róm til forna, byggt um 575 f.Kr. og sá staður sem Róm þróaðist út frá. Það liggur í dalverpi milli Kapítólhæðar og Palatínhæðar. Þar hófst verslun og stjórnun réttarfars fór fram. Miðpunktur samfélagsins var í Forum Romanum. Skipulagður uppgröftur fornleifa hefur farið fram á Forum
  • 8.
  • 9. Feneyjar eru reistar á 118 hólmum og helsti ferðamáti íbúa innan borgarinnar hefur frá upphafi verið siglingar. Margar fal- legar brýr tengja hólmana saman og því er þægilegt að fara ferða sinna fótgangandi en umfram allt skemmtilegt að sigla milli staða á gondóla, að degi eða kvöldi, jafnvel undir angur- værum söng ræðarans. Gondólarnir eru smíðaðir samkvæmt gamalli hefð, breiðari í annan endann til þæginda fyrir ræðarann sem aðeins notast við eina ár .
  • 10. Feneyska Rivieran er einn vinsælasti sumardvalarstaður Ítalíu og strandbærinn Lido di Jesolo býr yfir öllu því besta sem prýtt getur vel heppnað sumarleyfi. Stór- kostleg strandlengja, fjörugt næturlíf, góðir veitingastaðir og fjölbreytt skemmtun fyrir fjölskylduna. Lido di Jesolo er nýtískulegur bær sem stendur við 14 km langa strandlengju með gullnum fíngerðum sandi og þar er hægt að stunda fjölbreyttar vatnaíþróttir. Við strandgötu bæjarins eru ótalmargar verslanir með ítalskan tískuvarning opnar langt fram á kvöld. Þar eru einnig lítil torg þar sem heimamenn setja upp markaði og götulistamenn skemmta.Á föstudögum er markaður á Kennedytorgi, Piazza Kennedy, með fjölmörgum básum þar sem fjölbreyttur varningur er á boðstólum: matvara, fatnaður, blóm, o.m.fl. Fjöldi góðra veitingastaða er við strandgötuna og eftir góða ítalska máltíð með rómuðum vínum héraðsins er tilvalið að bregða sér á dansstað, en þeir eru fjölmargir í nágrenninu og hafa opið fram undir morgun. Sagt er að Lido di Jesolo sé staður sem aldrei sofi. Stórskemmtilegur vatnsbrautagarður, Aqualandia, er skammt frá ströndinni, með ótal tegundum af rennibrautum og sundlaugum; uppáhaldsstaður barna á öllum aldri. Nálægðin við Feneyjar eykur enn á fjölbreytnina, enda samgöngur þægilegar. Almenningsvagnar, leigubílar og farartækin sem einkenna Feneyjar, „watertaxi“, bátar sem flytja fólki milli staða. Dagsferðir á slóðir Rómeó og Júlíu í Verónu eða að hinu undurfagra Gardavatni gera fríið enn eftirminnilegra. Í Jesolo er auðvelt að gleyma sér í skemmtilegu og líflegu andrúmslofti staðarins
  • 11.
  • 12.
  • 13.
  • 14. Madonna di Campiglio er einn af þekktustu skíðabæjum Ítalu. Þangað flykkist skíðafólk á öllum aldri hvaðanæva að úr heiminum á hverju ári. Bærinn stendur í dalnum Val Rendena í vesturhluta Trentino héraðsins rétt við rætur vestur-Dólómítanna. Þetta fallega fjallaþorp liggur í rúmlega 1.500 metra hæð yfir sjávarmáli og eru bæjarbúar um sjö hundruð talsins. Stutt er í skíðalyftur og kláfa úr miðbænum og liggja hæstu brekkurnar upp í allt að 2.600 metra hæð. Skíðabrekkurnar eru eins fjölbreyttar og þær eru margar og henta jafnt byrjendum sem og lengra komnum. Fjallasvæðið skiptist í fjögur mismunandi skíðasvæði sem hægt er að skíða á milli og getur fólk valið um svartar, rauðar eða bláar brekkur, allt eftir getu hvers og eins. Svæðin Pradalago og Grosté eru auðveldust á meðan svæðin Spinale og 5 Laghi fela í sér meiri á- skoranir og ögranir.
  • 15. Skíðasvæðið er gríðarstórt, samtals um 150 km af skíðabrautum. Lengsta einstaka skíðabrautin telur heila fimm kílómetra. Lyftur eru 57 talsins og flestar eru þær opnar frá kl. 8.30 til 16.30 alla daga. Þær geta flutt allt að 30 þúsund gesti á hverjum klukkutíma upp og niður fjöllin. Boðið er upp á skíðakennslu á svæðinu fyrir alla aldurshópa. Með nýlegri tengingu er hægt að skíða frá Madonna yfir í tvo nærliggjandi smærri skíðabæi, Folgarida og Marilleva. Fyrrihluta dags og fram yfir miðjan dag er lífið í skíðabrekkunum en eftir að miðdegishvíldinni eða „síestunni“ lýkur og fram á kvöld færist líf í bæinn sjálfan. Miðbærinn er afar heillandi og gefa fjöldi skemmtilegra kaffihúsa og fjölbreyttra verslana honum skemmtilegan blæ.
  • 16. ð með in dregi r, m æli e u bæ kling r Gargand F rábæ i snilld ! . ho num Bæklingur sem er nauðsýn í alla bíla ! nnannaunaunauðsýn líu með alla Íta r ðast um ir að fe Ég á eft dbók ! Gagnrýnendur Þe ssa han
  • 17. http://romarvefurinn.is/italia_feneyjar.html [sótt 2011] http://is.wikipedia.org/wiki/%C3%8Dtal%C3%ADa [sótt 2011] http://is.wikibooks.org/wiki/R%C3%B3m [sótt 2011] http://is.wikipedia.org/wiki/R%C3%B3m [sótt 2011] http://www.urvalutsyn.is/skidi/madonna/ [sótt 2011] http://www.icelandonline.is/ferdaheimurisl/italia_rom.htm [sótt 2011]