Beginners Guide to TikTok for Search - Rachel Pearson - We are Tilt __ Bright...
Stick Back5
1. SAGA AÐLÖGUNAR
Hornsíli eru líklega flestum kunn. Nafn sitt draga þau
af göddum sem þau nota sér til varnar, en gaddarnir
eru umbreyttir uggar. Einnig hafa þau brynplötur úr
beini í stað hreisturs á síðum. Þau eru smávaxin,
oftast um 4 – 5 sm og lifa að meðaltali í 3 ár.
2. Sílin finnast víða um láglendi og á hálendi Íslands,
jafnt í litlum tjörnum og lækjum sem og stórum og
djúpum vötnum. Óhætt er að fullyrða að hornsíli er
algengasti ferskvatnsfiskurinn á Íslandi.
Skjót aðlögun hornsíla að ólíkum búsvæðum gera
fiskana frábrugðna öðrum fiskum í ferskvatni hér á
landi. Sílin virðast geta lifað við öfgakenndar
aðstæður sem aðrar tegundir þola illa eða ekki. Þar
má nefna örar seltubreytingar í sjávarlónum eða
hitasveiflur í grunnum vötnum.
3. Eftir síðasta jökulskeið (~ 10.000 ár) tók landið að rísa
þegar þunga íssins létti. Þá lokuðust sjávarlón af og
árfarvegir til vatna breyttust. Við þetta einangruðust
fiskistofnar sem héldu til í vötnunum. Sjávarhornsíli
höfðu þá numið hér land en þau eru forfeður
ferskvatnshornsíla eins og við þekkjum þau í dag.
Sjávarsílin eru stór (~ 11 sm), hafa lengri og grófari
gadda og eru fullbrynjuð, þ.e. hafa brynplötur sem ná
frá höfði að sporði. Hálfbrynjuð síli kallast þau sem
finnast í ísöltum vötnum (sjávarlónum) en brynja
þeirra nær að rauf.
4. Eftir áratuga dvöl í ferskvatni fækkar brynplötum í
3 – 4 og gaddar verða styttri og fínlegri. Dæmi eru
um að þessar breytingar taki aðeins örfáar
kynslóðir. Ein ástæða þess að brynplötum fækkar
er m.a. talin vera vegna minna afráns í ferskvatni
en sjó.
Tjörnin var líklega sjávarlón. Eftir að henni var
lokað endanlega, um 1989, og sjór gekk ekki
lengur inn í hana minnkaði seltan og annar
fiskistofn (áll) minnkaði.
5. Greinilegt er að aðlögun að þessum breyttu skilyrðum
er nú í fullum gangi hjá hornsílunum því í dag má sjá
mikinn breytileika á fjölda brynplatna eða frá einni
brynplötu upp í fulla brynju. Ætla má að eftir 10 – 15 ár
verði þau flest lítið brynjuð.
Hér hafa bein hornsílanna verið lituð til að undirstrika
breytileika í fjölda brynplatna.
6. Heimildir:
Bjarni Kristófer Kristjánsson ofl. 2002. Morphological segregation of Icelandic threespine
stickleback (Gasterosteus aculeatus L.). Biological Journal of the Linnean Society 76:247 – 257.
Bjarni K. Kristjánsson. 2005. Rapid morphological changes in threespine stickleback,
Gasterosterus aculeatus, in freshwater. Environmental Biology of Fishes 74:357 – 363.
Guðbjörg Ólafsdóttir, Sigurður S. Snorrason og Ritchie, M.G. 2007. Postglacial intra-lacustrine
divergence of Icelandic threespine stickleback morphs in three neovolcanic lakes. Journal of
Evolutionary Biology 20(5):1870 – 1881.
Klepaker, T. 1993. Morphological changes in a marine population of threespine stickleback,
Gasterosteus aculeatus, recently isolated in fresh water. Canadian Journal of Zoology 71:1251 –
1258.
Robinson, B.W. og Schluter, D. 2000. Natural selection and the evolution of adaptive genetic
variation in northern freshwater fishes. Í: Adaptive Genetic Variation in the Wild. Ritstj.
Mosseau, T.A., Sinervo, B. og Endler, J. s. 65–94. Oxford University Press, Oxford.
Sigurður S. Snorrason, Bjarni K. Kristjánsson, Guðbjörg Ólafsdóttir, Lisa Doucette, Hilmar J.
Malmquist og Skúli Skúlason. 2002. Hornsílið. Í: Þingvallavatn: undraheimur í mótun. Ritstj. Pétur
M. Jónasson og Páll Hersteinsson. Mál og Menning, Reykjavík.